Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Eiður Þór Árnason skrifar 2. ágúst 2026 08:36 Donald Trump á föstudag. Síðasta samkomulag Bandaríkjanna við Íran var skammlíft. AP/Jacquelyn Martin Bandaríkjaforseti segist ætla að fyrirskipa bandarískum hersveitum að bíða með frekari árásir á Íran og fullyrðir að bandamenn í Mið-Austurlöndum hafi náð saman um útlínur að samkomulagi sem muni binda enda á stríðið sem hefur staðið yfir í fimm mánuði.
Samkomulagið sem er í burðarliðnum „myndi fela í sér tafarlausa, fullkomna og algera OPNUN HORMÚSSUNDS og að endi verði bundinn á kjarnorkuógn Írans,“ skrifaði Donald Trump í samfélagsmiðlafærslu í gærkvöld. „Byggt á þessari beiðni hef ég samþykkt, í þágu heimsbyggðarinnar og, sömuleiðis, afkomu farsæls og blómlegs Írans, að hætta við árásina, með fyrirvara um að hægt sé að ná SAMKOMULAGI fljótt,“ bætti Trump við. Ísrael sagt tilbúið til að leggja sitt að mörkum Ísrael hefur samþykkt að taka þátt í því með Bandaríkjunum að reyna að ná samningi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, að sögn Bandaríkjaforseta. Íran hefur ekki tjáð sig opinberlega um tilkynningu Trumps. AP-fréttaveitan greinir frá. Yfirlýsing Trumps kemur degi eftir að hann gaf í skyn að Bandaríkin væru nálægt því að hefja þungar hernaðarárásir á ný til að þvinga stjórnvöld í Teheran að samningaborðinu. Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran þann 28. febrúar og hófu stríð sem Trump sagði að miðaði að því að eyðileggja eldflaugagetu Teheran, koma í veg fyrir að landið kæmist yfir kjarnorkuvopn og binda enda á stuðning þess við vopnaða bandamenn í öðrum ríkjum. Yfirlýst markmið og tímalínur átakanna hafa ítrekað tekið breytingum og samkomulag sem náðist um miðjan júní um að stöðva átökin rann út í sandinn innan nokkurra vikna. Sádar áhyggjufullir AP greinir frá því að Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu og eiginlegur leiðtogi konungsríkisins, hafi rætt við Trump í síma í gær og lýst yfir áhyggjum af því að Bandaríkin gætu magnað upp átökin við Íran. Símtalið átti sér stað áður en Trump birti áðurnefnda yfirlýsingu sína. Sádi-Arabar hafa áhyggjur af því að stjórnvöld í Íran gætu brugðist við með árásum á orkuinnviði þeirra og annarra Persaflóaríkja, að sögn ónefnds heimildarmanns. Krónprinsinn er sagður hafa óskað eftir upplýsingum um það hvaða aðgerðir Trump væri að íhuga gegn Íran. Íran hefur ítrekað ráðist á skip sem reyna að fara um Hormússund án leyfis þeirra eftir að átökin hófust við Bandaríkin. Hefur þetta meðal annars haft mikil áhrif á olíuútflutning nágrannaríkisins Sádi-Arabíu.
Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira