Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Agnar Már Másson skrifar 1. ágúst 2026 19:15 Ásgeir Pétursson Vísir/Lýður Valberg Minkabóndinn í Mosfellsdal segist hafa afhent lögreglu rauðtússaðan miða sem fannst á vettvangi skemmdarverka sem unnin voru á búinu. Hann ræður ekkert í tölurnar sem krotaðar voru aftan á miðann en hann telur þó ólíklegt að „hryðjuverkamennirnir“ hafi skilið eftir sig ummerki.
Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sagði við Vísi fyrr í dag að bæjarfélaginu hefðu síðasta sólarhring borist tvær marktækar ábendingar um mink. „Ég held að það mætti segja að þetta gangi bara glimrandi vel,“ sagði Hilmar bæjarstjóri. Ásgeir Pétursson minkabóndi á Dalsbúi segir að veiðimenn úr nærsveitum standi enn vaktina og skjóti þá minka sem finnist utan öryggisgirðingarinnar við búið. Hann segist enn ekki hafa tölu á þeim minkafjölda sem sloppið hefur út. Veiðin virðist hafa gengið vel, að sögn Ásgeirs. Hann kveðst hafa heyrt talsvert færri skothvelli í dag miðað við síðustu daga. Hann kveðst hafa á dögunum afhent lögreglu rauðtússaðan miða sem fannst á vettvangi. Um sé að ræða merkimiða úr búinu sjálfu en hvorki Ásgeir né starfsmenn búsins könnuðust við talnarununa sem búið var að skrifa aftan á miðann. „Það var skrifað aftan á þetta með alls konar töludrasli. Ég veit ekkert hvað þetta er. Ekki neitt,“ segir Ásgeir minkabóndi, sem kveðst ekkert hafa ráðið í tölurnar. Skemmdarvargar sem brutust inn í Stjörnubúð fyrr í sumar skildu eftir sig bréf með afsökunarbeiðni og stefnuyfirlýsingu. En Ásgeir á erfitt með að trúa því að þrjótarnir sem brutust inn í Dalsbúð hafi skilið eitthvað eftir sig enda telur hann að skemmdarverkið hafi verið þaulskipulagt. „Ég held að þetta hafi verið þrautþjálfaðir hryðjuverkamenn sem gerðu þetta,“ segir hann. „Þetta eru ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur sem voru að gera þetta.“
Loðdýrarækt Minkum sleppt í Mosfellsdal Mosfellsbær Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira