Innlent

Raf­magns­laust í Breið­holti í um klukku­stund

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Bilunin varð klukkan hálf 12.
Bilunin varð klukkan hálf 12. Vísir/Vilhelm

Vegna bilunar er rafmagnslaust í Breiðholti og nágrenni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Þar segir að rafmagnslaust sé við Bakka, Seljahverfi og nágrenni. 

Bilunin varð klukkan 23:30 og er unnið að viðgerð.

„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni.

Uppfært: 

Viðgerð var lokið um klukkan 00:50 og rafmagn komið aftur á hjá öllum íbúum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×