Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Jón Þór Stefánsson skrifar 10. júlí 2026 22:29 Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær konu í skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka, illa sofin, á annan bíl sem kom úr gagnstæðri átt.
Atvikið sem málið varðar átti sér stað í desember 2024 þegar konan ók vestur Suðurlandsveg í Rangárþingi eystra. Í ákæru segir að hún hafi verið óhæf til að stjórna bílnum örugglega, vegna svefnleysis. Hún hafi ekki staðsett bíl sinn eins langt til hægri og unnt var, og ekki gætt að því að nægt bil væri milli hennar bíls og umferðar úr gangstæðri átt. Hún hafi ekið yfir á rangan vegarhelming og endað framan á öðrum bíl sem var ekið úr gagnstæðri átt. Fyrir vikið hlaut ökumaður hins bílsins brot á lærlegg, efri enda ölnar, hálsliðum, lendarlið og viðbeini. Jafnframt hlaut hann áverka á heila og lifur, innanbastblæðingu og loftbrjóst. Þá hlaut farþegi í bíl hans brot á viðbeini, bringubeini, lendhrygg, brjósthrygg og rifjum, sem og loftbrjóst, og áverka á innri líffærum; lifur, ristil og smágirni og mar á kviðvegg. Konan sótti ekki þing í Héraðsdómi Suðurlands. Þótti háttsemin sem henni var gefið að sök sönnuð. Hún var dæmd í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi, og gert að greiða báðum þeim sem voru í hinum bílnum tvær milljónir króna, hvoru um sig. Þá er henni einnig gert að greiða 2,7 milljónir króna í sakarkostnað.
Samgönguslys Umferðaröryggi Dómsmál Rangárþing eystra Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Fleiri fréttir Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Sjá meira