Lygilegur viðsnúningur Argentínu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Lionel Messi og félagar gátu aldeilis fagnað eftir ótrúlegan síðasta stundarfjórðung leiksins.
Lionel Messi og félagar gátu aldeilis fagnað eftir ótrúlegan síðasta stundarfjórðung leiksins. Evrim Aydin/Anadolu via Getty Images

Argentína vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur á Egyptalandi í 16-liða úrslitum HM í Atlanta í Bandaríkjunum. Ríkjandi heimsmeistarar skoruðu þrjú mörk á 15 mínútum til að snúa leiknum á haus.

Fastlega var búist við sigri Argentínumanna í leik dagsins og það kom því á óvart þegar Yasser Ibrahim kom Egyptum yfir. Hann hafði betur í loftinu gegn Lisandro Martínez og skallaði fyrirgjöf Marwin Ateya í markið.

Sex mínútum síðar fékk Argentína víti. Lionel Messi steig að sjálfsögðu á punktinn en Mostafa Shobeir varði vítið. Annað vítið sem Messi klúðrar á mótinu, en enginn hefur gert það áður á einu og sama heimsmeistaramótinu.

Argentínumenn sóttu hart að Egyptum það sem eftir lifði hálfleiks en Shobeir stoppaði allt í markinu.

Sama var uppi á teningunum eftir hlé. Argentína lá á Egyptum sem voru þéttir til baka. Fyrsta sókn Egypta endaði á frábærri sendingu Mo Salah á Mostafa Ziko sem skoraði með stæl. Eftir endurskoðun myndbandsdómara var markið hins vegar dæmt af.

Sjö mínútum síðar skoraði Ziko öðru sinni og kom Egyptalandi 2-0 yfir aftur. Í þetta sinn var markið löglegt og útlitið dökkt fyrir Argentínu.

Cristian Romero minnkaði muninn með skallamarki á 78 mínútu og staðan orðin 2-1. Aðeins fimm mínútum síðar féll boltinn fyrir fætur Lionels Messi og hann negldi boltann í slá og inn til að jafna leikinn, 2-2.

Komið var fram á aðra mínútu uppbótartíma þegar Argentínumenn sóttu hratt. Lautaro Martínez átti stórkostlega fyrirgjöf frá hægri beint á höfuðið á Enzo Fernández sem skallaði boltann í netið. Staðan 3-2 og það urðu úrslit leiksins.

Viðsnúningurinn fullkomnaður og Argentína fer áfram í 8-liða úrslit á kostnað Egypta sem halda heim á leið með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira