Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Sindri Sverrisson skrifar 7. júlí 2026 09:03 Rodri fagnaði með krepptum hnefa í átt að Bernardo Silva eftir að skalli Silva fór rétt yfir markið. Getty/Molly Darlington Það slettist upp á vinskapinn hjá Rodri og Bernardo Silva, sem svo lengi voru liðsfélagar hjá Manchester City, þegar þeir mættust í leik Spánar og Portúgals í 16-liða úrslitum á HM í fótbolta í gærkvöld.
Silva kom inn á sem varamaður á 83. mínútu og átti eina hættulegustu tilraun Portúgals þegar skalli hans fór rétt yfir mark Spánverja. Þar sem að Silva lá á vellinum eftir skallann kom Rodri og fagnaði með ýktum hætti í átt að honum, standandi fyrir ofan liðsfélaga sinn til sjö ára. Þessu tók Silva skiljanlega illa og áttu þeir í orðaskaki. 🇪🇸🇵🇹 Rodri and Bernardo Silva were City brothers for 6 seasons.Champions League winners. Treble legends. Then Portugal vs Spain at the World Cup.Bernardo misses a massive header right in front of him.Rodri, standing inches away, starts celebrating the miss like it's…— Mario Nawfal (@MarioNawfal) July 7, 2026 Eftir leik baðst Rodri afsökunar en þeir Silva hafa verið samherjar hjá City frá árinu 2019 og fagnað fjölda titla saman. Silva er núna genginn í raðir Real Madrid en Rodri ætlar að ákveða sitt framhald eftir HM. „Það fyrsta sem ég vil gera er að biðjast afsökunar því ég hagaði mér ekki með réttum hætti gagnvart liðsfélaga mínum,“ sagði Rodri. „Það var náttúrulegt hjá mér að fagna því að hann klikkaði en það var rangt af mér. Ég bað hann afsökunar og ég biðst aftur afsökunar núna,“ sagði Rodri. Rodri var valinn maður leiksins en sagði að Mikel Merino, sem kom inn á og skoraði eina mark leiksins, hefði frekar átt skilið verðlaunin. „Ef að menn koma inn með réttu hugarfari eiga þeir skilið að vera valdir maður leiksins. Ég hefði veitt honum verðlaunin. Frammistaða allra var eftirminnileg,“ sagði Rodri auðmjúkur.
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Cristiano Ronaldo hefur fengið að heyra það í fjölmiðlum heima í Portúgal og um heim allan, eftir að Portúgalar féllu úr leik á HM í fótbolta í gærkvöld með 1-0 tapi gegn Spáni í 16-liða úrslitum. 7. júlí 2026 08:30 Martínez hættur með portúgalska landsliðið Roberto Martínez hefur staðfest að hann muni láta af störfum sem þjálfari Portúgals eftir að liðið féll úr leik gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM í kvöld. 6. júlí 2026 22:16 Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Spánn komst í kvöld áfram í 8-liða úrslit á HM karla í fótbolta eftir dramatískan 1-0 sigur á Portúgal í slag um Íberíuskaga í Dallas í Texas. Mikel Merino var hetja Spánverja í blálok leiks. 6. júlí 2026 21:00 Mest lesið Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport „Allur heimurinn gæti hlegið að mér“ Sport Sveindís missti af prinsessuleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Ronaldo: „Sennilega síðasta árið mitt á ferlinum“ Rúnar Alex fékk óvænt tækifæri í stórsigri FCK Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca Kristall Máni lagði upp en missti líka mark vegna VAR Sjá meira
„Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Cristiano Ronaldo hefur fengið að heyra það í fjölmiðlum heima í Portúgal og um heim allan, eftir að Portúgalar féllu úr leik á HM í fótbolta í gærkvöld með 1-0 tapi gegn Spáni í 16-liða úrslitum. 7. júlí 2026 08:30
Martínez hættur með portúgalska landsliðið Roberto Martínez hefur staðfest að hann muni láta af störfum sem þjálfari Portúgals eftir að liðið féll úr leik gegn Spáni í 16-liða úrslitum HM í kvöld. 6. júlí 2026 22:16
Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Spánn komst í kvöld áfram í 8-liða úrslit á HM karla í fótbolta eftir dramatískan 1-0 sigur á Portúgal í slag um Íberíuskaga í Dallas í Texas. Mikel Merino var hetja Spánverja í blálok leiks. 6. júlí 2026 21:00