Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetningar Kjartan Kjartansson skrifar 7. júlí 2026 08:09 Andrea Shaw þegar hún kom fyrir dómara í gegnum fjarfundarbúnað í Payette-sýslu í Idaho í síðustu viku. Hún sagði börn sín hafa látist eftir að þau voru bólusett. Hún er nú ákærð fyrir að hafa kæft þau. AP/KIVI-TV Kona sem hélt því fram að tvíburar hennar á öðru ári hefðu látist eftir að þeir voru bólusettir hefur verið ákærð fyrir að ráða þeim bana. Samtök heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna dreifðu sögu hennar um að dauði barnanna tengdist bólusetningu.
Í ákæru er Andrea Shaw frá Idaho í Bandaríkjunum sökuð um að hafa kæft átján mánaða gamla tvíbura sína í maí í fyrra. Hún er ákærð fyrir morð að yfirlögðu ráði, að sögn AP-fréttastofunnar. Hún gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi eða jafnvel dauðadóm. Shaw þessi sagðist hafa fundið tvíburana látna nokkrum dögum eftir að þeir voru bólusettir gegn inflúensu og fleiri sjúkdómum. Tengdi hún dauða þeirra beint við bólusetninga í viðtali sem samtökin Children's Health Defense framleiddu og dreifðu. Robert F. Kennedy yngri, heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, stofnaði samtök þessi sem berjast gegn bólusetningum með upplýsingafalsi um meinta skaðsemi bóluefna. AP segir að Shaw sé jafnframt einn stefnenda í máli sem samtökin höfðuðu gegn Akademíu bandaríska barnalækna í janúar. Í því eru læknasamtökin sökuð um að hafa blekkt almenning um öryggi bólusetninga um áratugaskeið. Í stefnunni er Shaw sögð móðir barna sem létust eftir bólusetningar sem barnalæknasamtökin mæltu með. Lögmaður Shaw segir að hún hafni allri sök og fullyrði að saksóknarar geti ekki sannað neitt á hana. Kennedy hefur sem ráðherra gert stórtækar breytingar á ráðleggingum bandarískra stjórnvalda um bólusetningar barna og annarra. Alríkisdómari lagði lögbann við breytingunum og taldi Kennedy hafa brotið lög þegar hann rak ráðgjafaráð um bólusetningar á einu bretti. Málið velkist enn um hjá dómstólum.
Bandaríkin Erlend sakamál Bólusetningar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira