Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 08:00 Bandaríkin skutu á ýmis skotmörk við strendur Íran til að bregðast við árás á flutningaskip á Hormús-sundi. Myndin er tekin af flutningaskipum á siglingu á sundinu. Vísir/AP Bandaríkjaher hefur gert árásir á írönsk skotmörk eftir að Donald Trump forseti sakaði Íran um „heimskulegt brot“ á vopnahléi í kjölfar árásar á flutningaskip á Hormússundi á fimmtudag.
Í frétt BBC um málið kemur fram að gerðar hafi verið árásir á eldflauga- og drónageymslur og ratsjárstöðvar við ströndina í gær, föstudag. Haft er eftir fulltrúa bandaríska hersins að árásirnar hafi verið svar við drónaárás á flutningaskip á fimmtudag. Árásin hafi stöðvað fyrirhugaðan brottflutning þúsunda sjómanna sem voru fastir á svæðinu. Stjórnvöld í Teheran sögðu að ráðist hefði verið á flutningaskipið vegna þess að það notaði óheimila siglingaleið „Tilefnislaus árásargirni íranskra hersveita gegn kaupskipum braut greinilega gegn vopnahléinu,“ sagði í yfirlýsingu Bandaríkjahers um árásina og að „hættuleg hegðun Íran“ grafi undan siglingafrelsi þar sem alþjóðleg viðskipti fara fram í auknum mæli. Bandaríkjaher sagði að þau myndu „halda áfram að veita samhæfingu og stuðning við örugga siglingu kaupskipa sem fara um sundið“. Skipið hafi farið ólöglega siglingaleið Íslamska byltingarvarðliðið í Íran (IRGC) kenndi Bandaríkjamönnum um að rjúfa samkomulagið og sögðu í yfirlýsingu að það að Bandaríkin hefðu gert loftárás á strönd Írans undir því yfirskini að skipið hafi farið ólöglega siglingaleið á Hormússundi. Þau hefðu svarað árásinni með árás á herstöð Bandaríkjanna. Fram kemur í frétt BBC að þau hafi haft samband við Pentagon til að fá viðbrögð. Stjórnvöld í Teheran lokuðu sundinu eftir að árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hófust í lok febrúar. Lokun siglingaleiðarinnar olli hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu og stöðvaði flutninga á öðrum mikilvægum vörum eins og áburði. Bandaríkin og Íran samþykktu þann 17. júní að binda enda á átök samkvæmt 14 punkta viljayfirlýsingu, þar sem einnig var skorað á Íran að beita sér „eftir bestu getu fyrir öruggri siglingu kaupskipa án endurgjalds í 60 daga“. Í færslu á X í kjölfar hefndarárása Bandaríkjanna sagði JD Vance varaforseti að fulltrúar Íran gætu „tekið upp tólið“ ef þeir væru ósáttir við það hvernig framkvæmd plansins væri. „En ofbeldi verður mætt með ofbeldi,“ bætti hann við í færslu á samfélagsmiðlinum X. Iran signed a ceasefire agreement. We have honored it. If they have disagreements about how the MOU is being applied, they can pick up the phone. But violence will be met with violence. https://t.co/VWnBS1PWaV— JD Vance (@JDVance) June 26, 2026 Ebrahim Azizi, formaður þjóðaröryggisnefndar íranska þingsins, sagði hins vegar á samfélagsmiðlum að Bandaríkin hefðu „enn og aftur ráðist á Íran í miðjum samningaviðræðum“. Hann hélt áfram í færslu sinni á samfélagsmiðlum: „Þetta ósvífna brot á vopnahléinu mun, eins og alltaf, leiða til undanhalds og eftirsjár af þeirra hálfu. Sökudólgaleikurinn virkar ekki lengur.“ Þegar Trump ræddi við fréttamenn í Hvíta húsinu síðdegis í gær, föstudag, um hvernig Bandaríkin kynnu að bregðast við drónaárásinni, eða hvort hann liti svo á að vopnahléið væri enn í gildi. „Þið komist að því,“ sagði hann. „Mér líkar ekki að þeir hafi skotið í gær. Þeir ættu ekki að vera að gera það.“ Aðspurður hvers vegna hann teldi að Íran myndi framkvæma slíka aðgerð sagði Trump aðeins að „þeir eru svolítið öðruvísi“. Viðræður gangi vel Í frétt BBC segir enn fremur að undanfarna daga hafi Trump og aðrir bandarískir embættismenn fullyrt að samningaviðræður við Íran gengju vel og sagt að Íran hafi fallið frá öllum hugmyndum um að leggja tolla á skip sem fara um Hormússund. Í færslu á Truth Social á miðvikudag sagði Trump að Íran hefði tilkynnt Bandaríkjunum að „engin tollgjöld, enginn tryggingakostnaður og engin önnur gjöld af neinu tagi yrðu sótt eða móttekin“. „Ef þetta eru rangar upplýsingar myndu samningaviðræður enda strax,“ bætti hann við. Bandaríkin hafa fordæmt fréttir af því að Íran sé að innheimta gjöld af tankskipum sem fara um sundið og margir líta á hvers kyns tollakerfi sem brot á alþjóðlegum hafréttarlögum. Ellefu þúsund sjómenn fastir Flutningaskipið sem varð fyrir skoti á fimmtudag var Ever Lovely, skip sem siglir undir fána Singapúr. Samkvæmt bresku siglingaöryggisstofnuninni UKMTO var skipið hitt 7,5 sjómílur suðaustur af höfninni Dahit í Óman. Ever Lovely hafði fylgt ráðlagðri leið UKMTO um sundið þegar það varð fyrir árásinni, sagði eigandi skipsins, Evergreen. „Allir áhafnarmeðlimir eru heilir á húfi, sem og skipið sjálft og allur farmur,“ bætti hann við. Til að bregðast við þessu stöðvaði Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) hjá Sameinuðu þjóðunum fyrirhugaðan brottflutning meira en 11.000 sjómanna sem hafa verið fastir á þessari mikilvægu siglingaleið frá því stríðið braust út.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Sjá meira