Kominn á toppinn Birgir Olgeirsson og Eiður Þór Árnason skrifa 26. júní 2026 19:27 Uppselt er á báða tónleikana. Vísir/Lýður Valberg Það stendur mikið til í Hörpu í kvöld þar sem Stefán Hilmarsson fagnar sextugsafmæli sínu með stórtónleikum. Þar verður farið yfir feril sem spannar rúmlega fjóra áratugi, meðal annars með hinni goðsagnakenndu hljómsveit Sálinni hans Jóns míns og sólóferil Stefáns.
Stefán segir að tónleikagestir geti átt von á heilmiklu fjöri og svo rólegri ballöðum í bland en hann endurtekur leikinn á morgun. Uppselt er á báða tónleikana. Aðspurður hvað standi hæst á hans langa tónlistarferli nefnir hann stóra áfanga líkt og þann sem hann fagnar í dag. Klippa: Stefán Hilmarsson fagnar stórafmæli „Þeir hafa verið allmargir í gegnum tíðina sem betur fer. Maður er búinn að lifa nokkur árin og ég held að mér finnist þetta bara vera toppurinn í dag.“ Stefán gerir fastlega ráð fyrir því að kannast við einhver andlit í áhorfendaskaranum í kvöld en hann og hljómsveitin Sálin hans Jóns míns hafa lengi átt dyggan aðdáendahóp. Alltaf erfitt að velja Stefán hafði úr ótal lögum að velja fyrir tónleikana og segir að það sé alltaf erfitt að velja og hafna. Minnst 27 lög verði spiluð í Hörpu í kvöld. „Maður reynir að fá eitthvert svona jafnvægi líka í þetta á milli þekktra og óþekktra laga. Ég ætla að syngja hérna allavega eitt eða tvö sem ég bara hef ekki sungið áður opinberlega en hef samt hljóðritað eða tekið þátt í að gera. Svo verða náttúrulega fastagestir og svo ætla ég að flytja tvö ný lög sem ekki hafa verið flutt áður opinberlega af nýrri plötu sem kom út á dögunum. Þannig að þetta verður svona eitt og annað.“ Sjálfur segir hann að allmörg lög séu í uppáhaldi. „Maður heldur alltaf mest upp á nýjustu lögin sem maður er að gera hverju sinni en svo eru náttúrulega nokkur lög sem maður hefur sungið hvað oftast. Ég get nefnt lög sem standa mér mjög svona nærri persónulega, til dæmis lagið Líf og Undir þínum áhrifum og svo eru þau nú sem betur fer mörg önnur.“ Fyrsta lagið í kvöld verður slagarinn Undir þínum áhrifum sem kom út á samnefndri plötu árið 2005.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Harpa Reykjavík Tímamót Mest lesið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira