Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. júní 2026 07:03 Hildur Björnsdóttir kynnti meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þann 27. maí síðastliðinn í Viðey. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að sér hafi orðið ljóst að sín biði uppbyggingarstarf í Sjálfstæðisflokknum eftir að flokkurinn var útilokaður úr meirihluta fyrir fjórum árum síðan. Hún ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón, spurð út í yfirlýsingar þeirra eftir kosningar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í hlaðvarpi Vísis þar sem farið er yfir víðan völl með Hildi. Hún er spurð um uppvaxtarárin, menntaskólaárin og baráttu sína við krabbamein svo fátt eitt sé nefnt. Þá er meðal annars rætt um átta ár Hildar í minnihluta í borgarstjórn og meintar erjur innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins á síðasta kjörtímabili. Hlusta má á og horfa á hlaðvarpsþáttinn á Vísi, hlusta á Tal og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Klippa: Hlaðvarp Vísis - Reykvíkingar muni finna fyrir breytingum á næstunni Segir ástæðu fyrir því að að enginn hafi útilokað flokkinn í þetta sinn Hún er einnig spurð út í atburðarásina eftir kosningar nú og yfirlýsingar Miðflokksmanna um meirihlutamyndun þar sem Sjálfstæðismönnum var sagt að hætta að vera litlir í sér og Hildur sögð fara Friðjónsleiðina með meirihlutamyndun sinni. Hvað finnst þér um þessa umræðu sem kom þarna fram hjá Miðflokknum? „Hún er kannski einkennandi fyrir allt það sem ég taldi nauðsynlegt að hreinsa út úr Sjálfstæðisflokknum ef við ætluðum að verða samstarfshæf og var hreinsað út úr Sjálfstæðisflokknum og var þá kannski einmitt ástæða þess að fólk vildi starfa með okkur. Þannig ég myndi nú bara ráðleggja Miðflokksmönnum að breyta um tón ef þeir ætla sér að verða stjórntækir.“ Það hljómar eins og það hafi í raun bara verið persónulegur og jafnvel pólitískur ómöguleiki fyrir þig að mynda meirihluta með Miðflokknum? „Það voru bara allskonar kostir og gallar við allar sviðsmyndir, án þess að ég hafi um það einhver önnur eða fleiri orð. En auðvitað var á framboðslista í efstu sætum hjá Miðflokki bara fullt af nýju fólki, ég sé að þau eru öflug og vonandi láta þau bara til sín taka og taka þátt með okkur í að koma góðum hlutum til leiðar í Reykjavík.“ Einnig er rætt við Hildi um komandi tíma á kjörtímabilinu, nýskipaðan hagræðingarhóp, traust hennar til Ara Edwald í starfi stjórnarformanns Orkuveitunnar, leikskólamálin og samgöngumál. Hildur fagnaði á dögunum stórafmæli, fjörutíu ára afmæli á sama tíma og hún tekur við sem borgarstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn var síðast í meirihluta í borginni fyrir sextán árum síðan, árið 2010 og ljóst að um mikil tímamót er að ræða. Hlusta má á hlaðvarpsþáttinn í heild sinni á Vísi, á Tal og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Hlaðvarp Vísis Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Sjá meira