Hlaðvarp Vísis

Fréttamynd

Já­kvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel

Íslendingar greiða atkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið á tíma þar sem ESB er í mikilli naflaskoðun vegna breyttrar heimsskipanar. Þetta er mat fréttamanns Politico sem þekkir vel til í ESB, en hann hefur skyggst á bakvið tjöldin í Brussel.

Innlent
Fréttamynd

Ungir vinstri­menn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjall­konuna á nokkurn hátt“

Tveir ungir vinstrimenn tókust á í Vísi að viðræðum um það hvort Ísland ætti að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ungur VG-liði hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins en ungur jafnaðarmaður segir ESB hafa gert margt til að tryggja réttindi vinnandi fólks. Þeir segjast þó bera virðingu fyrir sjónarmiðum hvor annars; enginn sé að vinna fjallkonunni nokkurt mein.

Innlent
Fréttamynd

Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðug­leika“

Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“.

Innlent
Fréttamynd

EES án Ís­lands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“

Norðmenn fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, ekki síst sjávarútvegsmenn. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lendingar voru al­ræmdir og lítið traust á milli

„Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Gætum þurft að fram­vísa smáríkjakortinu

„Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina að innan þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins.

Innlent
Fréttamynd

„Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“

Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna.

Innlent
Fréttamynd

„Jón Sigurðs­son nefndi aldrei sjálf­stæði“

„Þessi vegferð hefst eiginlega ekki raunverulega fyrr en í upphafi tuttugustu aldar, þegar virkilega koma fram stjórnmálahreyfingar og stjórnmálahugmyndir um að það væri best fyrir Íslendinga að slíta samstarfinu við Dani,“ segir Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur sem er gestur dagsins í hlaðvarpinu Vísir að viðræðum.

Innlent
Fréttamynd

„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við

Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt.

Innlent
Fréttamynd

Allt gert til að stöðva birtinguna

Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar.

Innlent
Fréttamynd

„Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir ein­hvern annan en mig“

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir ekki erfitt að rifja upp þann tíma sem hún fékk krabbamein og sigraðist svo á meininu þó hún sækist ekki eftir því. Hún upplifi sem svo að veikindin hafi komið fyrir einhvern annan en hana, hún hafi aldrei litið á sig sem fórnarlamb. Hildur segir borgarstjórnarhlutverkið leggjast vel í börn hennar en hún hafi varað þau við að það muni stundum reynast erfitt.

Lífið
Fréttamynd

Ráð­leggur Mið­flokksmönnum að breyta um tón

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að sér hafi orðið ljóst að sín biði uppbyggingarstarf í Sjálfstæðisflokknum eftir að flokkurinn var útilokaður úr meirihluta fyrir fjórum árum síðan. Hún ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón, spurð út í yfirlýsingar þeirra eftir kosningar. 

Innlent