Landsliðsfyrirliðinn á leið í safaríferð til Tansaníu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2026 08:30 Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir ætlar að eyða sumarfríi sínu í Afríku en fram undan er safaríferð til Tansaníu. Getty/Alex Caparros Stór hluti íslenska kvennalandsliðsins kláraði tímabilið sitt með landsleikjunum í undankeppni HM í síðustu viku en hvað ætla þær að gera í sumarfríinu?
Samskiptamiðlamaður Knattspyrnusambands Íslands ákvað að komast að því hvernig leikmenn íslenska landsliðsins ætluðu að eyða sumarfríi sínu til að hvíla sig og safna orku fyrir næstu leiktíð. Það eru þó ekki allar sem fá sumarfrí eins og hann komst að. Leikmenn sem spila heima í Bestu deildinni og þær sem spila í Noregi, sem dæmi, verða bara að spila fótbolta í allt sumar. Ekkert sumarfrí þar á bæ. Langflestar af þeim sem fá gott sumarfrí ætla að fara í sólina í Suður-Evrópu og mátti heyra staði eins og Ítalíu, Spán og Grikkland nefnda. Frakkland og Svartfjallaland voru líka nefnd en margar ætla líka að eyða tíma með fjölskyldu sinni á Íslandi. Sandra María Jessen ætlar þó ekki að fljúga suður á Ítalíu heldur að leigja sér bílaleigubíl og keyra niður eftir með fjölskyldu sinni. Þær sem skáru sig úr hópnum voru reynsluboltarnir sem spila saman í miðri vörn íslenska landsliðsins eða þær Glódís Perla Viggósdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir. Ingibjörg, sem spilar með Freiburg í Þýskalandi, ætlar að eyða sumarfríi sínu á Íslandi og með fjölskyldunni. Hún hefur planað útilegu á Vestfjörðum og nú er að vona að veðrið leiki við hana í þeirri ferð. Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla fer aftur á móti í metnaðarfyllstu ferðina í sumarfríinu. Glódís, sem spilar með Bayern München í Þýskalandi, er á leiðinni til Afríku í sumar. Nánar tiltekið þá ætlar hún í safaríferð til Tansaníu og Zanzibar, sem er eyja fyrir utan Tansaníu í Austur-Afríku. Heyra má öll svör stelpnanna hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnusamband Íslands (@footballiceland)
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira