Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Samúel Karl Ólason skrifar 11. júní 2026 12:59 Donald Trump segir að yfirtaka Bandaríkjanna á olíuframleiðslu í Venesúela hafi reynst báðum ríkjum vel. Nú segist hann ætla að taka yfir framleiðslu olíu og jarðgass í Íran. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump segir að Bandaríkjamenn muni gera mjög kröftugar árásir á Íran í kvöld. Þá segir forsetinn að Bandaríkjamenn muni hernema Kharg-eyju á Persaflóa á næstunni. Þá muni Bandaríkjamenn taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Íran, ekki ósvipað því sem hann gerði í Venesúela.
Þetta segir Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum. Hann lýsir árásum kvöldsins sem „mjög hörðum“. Bandaríkjamenn og Íranir hafa skipst á árásu síðustu daga og virðist sem vopnahléið sem samið var um í síðasta mánuði sé ekki lengur í gildi. Um yfirtöku á olíu- og jarðgasframleiðslu í Íran segir Trump að þetta verði líkt því sem ríkisstjórn hans gerði í Venesúela og heldur því fram að það sé að reynast gífurlega vel, bæði fyrir Venesúla og Bandaríkin. Færsla Trumps á Truth social. Kharg-eyja er Írönum gífurlega mikilvæg þegar kemur að olíu- og gasframleiðslu. Þar er stórum hluta olíu og jarðgasi sem dælt er úr jörðu í Íran dælt á flutningaskip. Flutningsgetan þaðan er um sjö milljónir tunna af olíu á dag. Sendi hermenn sem gætu tekið eyjuna Í mars lýstu Bandaríkjamenn því yfir að til stæði að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda og að hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Landgönguliðar hafa einnig verið sendir á svæðið. Umræddir fallhlífarhermenn tilheyra stórfylki (Brigade) úr 82. herdeild (Division) fallhlífarhermanna. Þetta stórfylki hefur verið þjálfað og búið þannig að hægt eigi að vera að senda meðlimi þess hvert sem er í heiminum með 18 klukkustunda fyrirvara. Hermennirnir eru sérstaklega þjálfaðir til að stökkva úr flugvélum og taka mikilvæga innviði eins og flugvelli. Sjá einnig: Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Þá var umfangsmikil umræða um að hermennirnir gætu verið notaðir til að hernema Kharg-eyju en Bandaríkjamenn höfðu þá gert loftárásir á eyjuna. Meðal annars voru árásir gerðar á flugvöllinn þar, sem gæti gert Írönum erfiðara um vik með að senda liðsauka. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Vildi taka eyjuna frá upphafi Hernám Kharg-eyju fæli í sér mikla hættu fyrir bandaríska hermenn. Íranir hafa byggt upp varnir þar í gegnum árin og eru einnig taldir hafa komið fyrir gildrum og jarðsprengjum víða. Þá hafi þeir flutt talsvert magn af flugskeytum gegn flugvélum sem einn hermaður getur skotið, vopn sem kallast MANPADS, til eyjunnar. Þegar umræðan um eyjuna var hvað háværust í mars sögðu sérfræðingar í samtali við CNN að margir hermenn gætu fallið. Heimildarmenn miðilsins í varnarmálaráðuneytinu og ríkisstjórn Bandaríkjanna segja nú að hingað til hafi forsvarsmenn heraflans talið hernám Kharg of hættulegt. Það myndi þó gera klerkastjórninni mun erfiðara að halda velli án tekna þaðan. Í samtali við Fox News í dag sagðist Trump frá upphafi átakanna gegn Íran hafa viljað hernema Kharg-eyju. Bandaríkjamenn gætu grætt fúlgur fjár á því eins og þeir hafa gert í Venesúela. Hann sagðist þó ekki viss um að bandaríska þjóðin studdi það. „Ég er ekki viss um að þjóðini hafi lyst á því, ef það meikar sens, sama hversu gott þetta er.“ Trump: "My preference has always been to take Kharg Island. I don't know that America has the stomach for it, to be honest with it. You'd make a fortune." pic.twitter.com/5ub1HK4WMH— Aaron Rupar (@atrupar) June 11, 2026 Trump hélt því einnig fram að íranski herinn væri alfarið búinn á því og að ef hann vildi, gæti hann hernumið all landið með tiltölulega fáum hermönnum. Þá skammaðist hann út í fjölmiðla fyrir að vilja ekki segja frá því. Skutu eldflaugum á flutningaskip Bandarískir hermenn skutu í gærkvöldi á olíuskip á Ómanflóa. Þeir segja að skipið, sem hafi verið siglt undir fána Gíneu-Bissaú, hafi verið notað til að flytja olíu frá Íran og reynt hafi verið að sigla því gegnum herkví Bandaríkjamanna um Íran. Síðan Íranir lokuðu Hormússundi fyrir svo gott sem öllum skipaflutningum hafa Bandaríkjamenn haldið Íran í herkví og meinað klerkastjórninni að flytja olíu úr landi. Í yfirlýsingu frá miðstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (CENTCOM) segir að þetta sé þriðja skipið sem Bandaríkjamenn gera óvirkt með árásum á undanfarinni viku. Að þessu sinni var tveimur eldflaugum af gerðinni Hellfire skotið inn í vélarrými skipsins eftir að áhöfn þess neitaði að hlýða ítrekuðum skipunum Bandaríkjamanna, samkvæmt CENTCOM. Áður höfðu Bandaríkjamenn í vikunni stöðvað eitt skip sem reynt var að sigla til hafnar í Íran og annað sem verið var að nota til að flytja olíu þaðan. Í heildina segjast Bandaríkjamenn hafa stöðvað níu skip með valdi, snúið 135 skipum við og leyft 42 skipum sem fluttu almennar nauðsynjar að fara gegnum herkvína frá því henni var komið á þann 13. apríl. https://t.co/6VEqoDxDSb— U.S. Central Command (@CENTCOM) June 11, 2026 Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Hernaður Tengdar fréttir Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Bandaríkjamenn og Íranir héldu áfram árásum sínum í nótt og í morgun en skotmörk fyrrnefndu voru hernaðarinnviðir tengdir loftvörnum, eftirliti og samskiptum. Síðarnefndu svöruðu með árásum á skotmörk í Barein, Jórdaníu og Kúvæt. 11. júní 2026 06:53 Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Stjórnvöld í Íran segjast hafa gert eldflaugaárásir á skotmörk í Kúvæt, Barein og Jórdaníu, eftir árásir Bandaríkjanna í gær. Þær árásir voru svar við atviki þar sem bandarísk þyrla fórst yfir Hormuz-sundi. 10. júní 2026 06:32 Bandaríkjamenn ráðast á Íran Bandaríkjamenn hafa hafið árás gegn Íran eftir að Íranir skutu niður þyrlu Bandaríkjahers. 9. júní 2026 21:23 Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fleiri fréttir Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Sjá meira
Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Bandaríkjamenn og Íranir héldu áfram árásum sínum í nótt og í morgun en skotmörk fyrrnefndu voru hernaðarinnviðir tengdir loftvörnum, eftirliti og samskiptum. Síðarnefndu svöruðu með árásum á skotmörk í Barein, Jórdaníu og Kúvæt. 11. júní 2026 06:53
Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Stjórnvöld í Íran segjast hafa gert eldflaugaárásir á skotmörk í Kúvæt, Barein og Jórdaníu, eftir árásir Bandaríkjanna í gær. Þær árásir voru svar við atviki þar sem bandarísk þyrla fórst yfir Hormuz-sundi. 10. júní 2026 06:32
Bandaríkjamenn ráðast á Íran Bandaríkjamenn hafa hafið árás gegn Íran eftir að Íranir skutu niður þyrlu Bandaríkjahers. 9. júní 2026 21:23