„Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Agnar Már Másson skrifar 7. júní 2026 23:12 „Það er að hlusta á eftir samskiptum og fylgjast með því sem NATO-ríkin eru að gera í sínum æfingum,“ segir skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins um skipið Yuri Ivanov, sem hefur siglt í efnahagslögsögu Íslands síðustu daga. NATO Rússneska njósnaskipið sem siglir nú í efnahagslögsögu Íslands hefur verið kallað „ofurnjósnaskip Pútíns“ en það er hluti af norðurflota rússneska sjóhersins. Íslensk varnarmálayfirvöld hafa engar sérstakar áhyggjur af skipinu enda stafar lítil sem engin hætta af sjálfu sjófarinu. Algengt er orðið að rússnesk sjó- og loftför sveimi um á norðurslóðum.
Sjálfur Vladimír Pútín Rússlandsforseti var viðstaddur þegar fáni var dreginn að húni um borð í njósnaskipinu Yuri Ivanov er það var formlega vígt sem njósnaskip við athöfn í Kalíníngrad vorið 2015, en þá var um ár liðið frá innlimun Rússlands á Krímskaga. Þegar þýska dagblaðið Bild greindi frá vígslunni á sínum tíma kallaði miðillinn skipið „ofurnjósnaskip Pútíns“ enda var ekki um neina smáduggu að ræða, heldur glænýja kynslóð njósnaskipa í sjóherflota Rússlands. Vladimír Pútín Rússlandsforseti við vígsluathöfn Yuri Ivanov árið 2015. Á mynd má reyndar sjá reyndar annað skip, er nefnist Gorshkov Aðmíráll, sem var einnig til sýnis á sömu athöfn.Forsetaskrifstofa Rússlands Skipið Yuri Ivanov er 95 metrar að lengd, 16 metrar að breidd, vegur allt að fjögur þúsund tonn fullfermt og er með rými fyrir ríflega 120 manna áhöfn. Þá er skipið enn fremur búið háklassa njósnabúnaði, svo sem loftnetum, sem er ætlað að veita rússneska sjóhernum getu til upplýsingaöflunar, eftirlits, rafræns hernaðar, flotaumsjónar og hlerunar, samkvæmt skráningu þess í opna varnarmálagagnagrunninum ODIN. Skipið er einnig fært um að greina og fylgjast með loftvarnaeldflaugakerfum. Á þeim tíma sem skipið var kynnt var haft eftir sérfræðingi í málefnum Rússahers í umfjöllun Moscow Times að um væri að ræða skip sem væri sem var sérstaklega hannað til að fylgjast með bandaríska herflotanum og finna veika bletti í loftvarnarkerfi Bandaríkjanna, en það virkar einnig sem venjulegt njósnaskip. Frá degi rússneska sjóhersins árið 2015. Pútín siglir um borð í snekkjunni Serafim Sarovskí og fylgist með er hvítur og blár fáni rússneska sjóhersins er dreginn að húni um borð í Yuri Ivanov, sem hefur siglt um íslenskt hafsvæði undanfarna daga.forums.airbase.ru Ekkert að leynast í kringum æfingu NATO Nú hefur skipið dúkkað upp innan efnahagslögsögu Íslands, að sögn utanríkisráðuneytisins, sem hefur vaktað ferðir þess í rúma viku. Áður en skipið kom hingað hafði það verið á sveimi í kringum kafbátaæfingu Atlantshafsbandalagsins (NATO), Dynamic Mongosse, sem haldin var fyrir utan strendur Noregs seinni hluta maí. „Þannig að það hefur ekkert verið að leynast,“ segir Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, í samtali við Vísi. We. Are. Watching. 👀🌊SNMG1 units monitor Russian vessel Yuri Ivanov near Dynamic Mongoose 2026 in the High North.Always ready. Always aware. ⚓ pic.twitter.com/7Npm0DnuAE— NATO Maritime Command (@NATO_MARCOM) May 21, 2026 „Svo hefur það verið að lóna hér á Norður-Atlantshafi og fór núna vestur með landinu. Og við fylgjumst bara náið með því.“ Njósnaskipið er nú sagt vera statt vestan við Ísland, milli Íslands og Grænlands, og stefnir suður samkvæmt nýjustu upplýsingum. Jónas G. Allansson er skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.NATO Þyrlu Landhelgisgæslunnar var í gær, laugardag, flogið yfir skipið, en Jónas segir að stjórnvöld hafi ekki átt nokkur samskipti við áhöfn rússneska skipsins. „Svo fylgjast bandamenn okkar líka með þessari umferð. Þannig að þetta er í þéttu samráði Landhelgisgæslunnar, varnarmálaskrifstofunnar og herstjórnar Atlantshafsbandalagsins. Og svo fylgist NATO-flugstöðin í Keflavík líka með þessu,“ bætir Jónas við. Hlusta á eftir samskiptum En hvað er rússneskt skip að gera á þessum slóðum? „Þetta skip er fyrst og fremst útbúið til þess að reyna að afla upplýsinga. Það er að hlusta á eftir samskiptum og fylgjast með því sem NATO-ríkin eru að gera í sínum æfingum,“ segir Jónas. Rússnesk skip og flugvélar séu ekki óalgeng meðfram ströndum Noregs, við Bretland eða á hafsjónum í kringum Ísland, þótt þau haldi sig mest norður af Noregi í Barentshafi. Rússneskar flugvélar voru oft á sveimi yfir norsku hafsvæði í maí, að því er VG greindi frá. „Það gerist oft þegar það eru stærri æfingar úti á sjó, þá koma oft flugvélar eða skip eins og þetta og eru í nágrenninu og reyna að skynja hvað það er sem við erum að gera, eins og við fylgjumst líka með því sem þeir eru að gera.“ Jónas segir að skipið hafi rétt til óhindraðrar siglingar í gegnum efnahagslögsögu Íslands en myndi þurfa sérstaka heimild ef það hyggst sigla um landhelgina. Hafa engar áhyggjur Engin bein hætta stafar af skipinu að sögn Jónasar og það er aðeins búið takmörkuðum vopnabúnaði. Á vefsíðu ODIN kemur fram að um borð séu eldflaugavörpur af tegundinni SA-18 Igla, en um er að ræða skammdrægt loftvarnarkerfi sem er ætlað til þess að verjast loftförum í lágflugi, svo sem flugvélum, þyrlum eða drónum. „Það er þá fyrst og fremst bara einhver svona lágmarksbúnaður til sjálfsvarnar. Ég get nú sagt að þetta sé kannski ekki herskip í hefðbundnum skilningi orðsins,“ segir Jónas. Hafið þið engar áhyggjur af skipinu? „Nei, engar sérstakar áhyggjur af þessu. Eins og ég segi þá er ekkert óvenjulegt að rússnesk herskip séu á ferðinni um Norður-Atlantshaf, þótt algengast sé að þau séu hérna austan megin við okkur og nær Noregi og svo upp í Barentshafi. En sennilega er þetta skip hér að lóna vegna þessarar umferðar bandalagsríkja í tengslum við æfinguna.“
Öryggis- og varnarmál Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu NATO Landhelgisgæslan Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Sjá meira