„Allar spár kolrangar og vitlausar“ Valur Páll Eiríksson skrifar 3. júní 2026 09:30 Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, getur líkt og leikmenn aðeins andað þessa dagana áður en æfingar fara aftur á fullt í lok vikunnar. Vísir/Lýður Að spá Fram í neðri hluta Bestu deildar karla var bull og vitleysa að mati þjálfara liðsins. Óhætt er að segja að liðið hafi blásið á hrakspár og hafi komið hvað mest liða á óvart í upphafi móts.
Fram hefur byrjað leiktíðina í Bestu deild karla vonum framar. Aðeins Víkingur og KR, sem bæði hafa farið stórkostlega af stað, eru fyrir ofan þá bláklæddu sem sitja í þriðja sæti deildarinnar þegar þriðjungi mótsins er lokið. Framarar gátu fengið gott frí eftir leik sinn á föstudaginn var. „Við höfum tök á að gefa þeim viku frí. Það er sjaldan sem maður getur gefið svo langt frí – ég hef mest gefið fimm daga áður. En strákarnir hafa staðið sig frábærlega og eiga bara skilið að fá smá frí,“ Átt þú það ekki skilið líka Rúnar? „Jú, hef eigum það allir skilið,“ segir Rúnar og glottir. „Eins og ég segi þá hefur þetta verið mikið álag og mikil vinna og búið að ganga vel og það eru allir sáttir.“ Hlutirnir að smella En hvað veldur því að Frömurum hefur gengið svo vel þessi dægrin? „Okkur hefur lukkast að finna góða stráka sem kannski fengu fá tækifæri annars staðar. Þeir hafa verið að standa sig gríðarlega vel hjá okkur og hafa metnað til að verða betri og við höfum gefið þeim þau tækifæri,“ segir Rúnar sem er á sínu þriðja tímabili sem þjálfari Fram. Segja má að batamerki hafa sést ár fyrir ár. „Taktíkin sem við byrjuðum að spila þegar ég tók við hefur haldist og við höfum þróað hana töluvert mikið. Svo er þetta auðvitað trú á verkefnið.“ Kennie setur tóninn í öllu Fremstur í flokki Framsveitar er Kennie Chopart, fyrirliði liðsins. Sá eldist eins og gott rauðvín og hefur farið frábærlega af stað, 36 ára gamall, og er markahæsti leikmaður Fram, þrátt fyrir að spila sem vængbakvörður. Hvað ertu eiginlega að gefa Kennie að borða? „Hah, ég er ekki að gefa honum neitt,“ segir Rúnar og brosir. „Kennie er bara ótrúlegur karakter og ég er búinn að þjálfa hann í átta eða níu ár, frá því ég tók við KR 2018 og tók hann með mér hingað,“ segir Rúnar. Það var þá í raun forgangsatriði fyrir Rúnar að fá Kennie með sér úr Vesturbæ í Úlfarsárdal, þegar hann breytti um starfsvettvang. „Hann er bara fyrirmynd allra. Að mínu mati, þegar hann mætir hérna á fyrstu æfingarnar með mér í Fram þá bar hann höfuð og herðar yfir alla í hlaupagetu, í krafti og í ákefð á æfingum og öllu slíku,“ „Það hefur hjálpað Fram á þann stað sem liðið er á í dag. Hann á stóran þátt í þessu.“ Spárnar galnar Í flestum spám fyrir mót voru Framarar settir í 8.-9. sæti deildarinnar. Segja má að menn í Úlfarsárdal skjóti hrakspármönnum ref fyrir rass. „Að mínu mati voru allar spár kolrangar og vitlausar og ég skil ekki hvernig menn fengu þetta út. Að spá okkur áttunda eða níunda sæti, en það er allt önnur ella. Við vitum betur. Við vitum hvað við erum með í höndunum,“ „Ég er með frábært lið. Við viljum gera betur en við gerðum í fyrra. Við enduðum í fimmta sæti þá. Til að gera betur en í fyrra þurfum við að enda í fjórða sæti og það er ennþá markmiðið okkar,“ segir Rúnar. Fréttina úr Sportpakka gærkvöldsins má sjá efst. Að neðan má sjá lengri útgáfu af viðtali við Rúnar. Klippa: Rúnar ræðir frábæra byrjun Framara
Fram Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Fótbolti Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Fleiri fréttir Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík „Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 1-1 | Botnliðið náði í stig Tókst á við stjörnurnar í La Liga en heldur nú til Þórs Sölvi keyptur til KR Sjá meira