Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Gunnar Reynir Valþórsson og Lovísa Arnardóttir skrifa 27. maí 2026 08:02 Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillagnanna en með henni á þeim eru einnig Hildur Sverrisdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Öll sitja þau í utanríkismálanefnd. Vísir/Vilhelm Umræðum um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verður fram haldið á þingfundi í dag klukkan þrjú. Stjórnarandstaða leggur til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað og að gerðar verði frekari breytingar á spurningunni. Þingmenn ræddu málið fram til klukkan hálftólf í gærkvöldi. Á mælendaskrá í dag eru þingmenn Miðflokksins auk Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra. Tvær breytingartillögur voru lagðar fram í gær og er Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins flutningsmaður þeirra beggja. Í annarri tillögunni er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað fram í október en í hinni eru lagt til að gerðar verði breytingar á spurningunni sem leggja á fyrir þjóðina. Utanríkismálanefnd samþykkti fyrr í þessum mánuði breytingar á spurningunni. Tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Tillaga Diljár Mistar Einarsdóttur, Hildar Sverrisdóttur, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar: „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Í hinni tillögunni er lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við þar sem ráðherra er gert skylt að kynna opinberlega á vef Stjórnarráðsins samningsmarkmið Íslands í mögulegum aðildarviðræðum. Þetta skuli gert eigi síðar en 30 dögum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram. Forseti Alþingis Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði í samtali við fréttastofu í gær að sátt væri um að klára afgreiðslu málsins í dag. Engir þingfundir eru áætlaðir á morgun og hinn og því þarf að afgreiða málið í dag ef fyrirhuguð dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar, 29. ágúst næstkomandi, á að halda sér. Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Alþingi Tengdar fréttir Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst. 26. maí 2026 12:01 „Hvað hafa þau að fela?“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera „já, kannski“-manneskja hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu varðar. Hún myndi aldrei tala fyrir samþykkt óásættanlegs samnings. 24. maí 2026 12:36 „Munum aldrei“ geta tekið upp evru nema koma vinnumarkaðinum fyrst í lag Krónan er ekki orsakavaldur þeirrar þrálátu verðbólgu sem peningastefnunefnd Seðlabankans er núna að reyna ná niður með hækkun vaxta, að sögn seðlabankastjóra, heldur er fremur augljóst að miklar launahækkanir eru að birtast með skýrum hætti í verðbólgutölunum. Hann segir að vinnumarkaðslíkanið sé greinilega „brotið“ og það muni ekki lagast sjálfkrafa við mögulega inngöngu Íslands í evrópska myntbandalagið heldur þurfi að koma því í lag á undan. 22. maí 2026 13:38 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira
Þingmenn ræddu málið fram til klukkan hálftólf í gærkvöldi. Á mælendaskrá í dag eru þingmenn Miðflokksins auk Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra. Tvær breytingartillögur voru lagðar fram í gær og er Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins flutningsmaður þeirra beggja. Í annarri tillögunni er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað fram í október en í hinni eru lagt til að gerðar verði breytingar á spurningunni sem leggja á fyrir þjóðina. Utanríkismálanefnd samþykkti fyrr í þessum mánuði breytingar á spurningunni. Tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Tillaga Diljár Mistar Einarsdóttur, Hildar Sverrisdóttur, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar: „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Í hinni tillögunni er lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við þar sem ráðherra er gert skylt að kynna opinberlega á vef Stjórnarráðsins samningsmarkmið Íslands í mögulegum aðildarviðræðum. Þetta skuli gert eigi síðar en 30 dögum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram. Forseti Alþingis Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði í samtali við fréttastofu í gær að sátt væri um að klára afgreiðslu málsins í dag. Engir þingfundir eru áætlaðir á morgun og hinn og því þarf að afgreiða málið í dag ef fyrirhuguð dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar, 29. ágúst næstkomandi, á að halda sér.
Tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Tillaga Diljár Mistar Einarsdóttur, Hildar Sverrisdóttur, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar: „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Alþingi Tengdar fréttir Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst. 26. maí 2026 12:01 „Hvað hafa þau að fela?“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera „já, kannski“-manneskja hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu varðar. Hún myndi aldrei tala fyrir samþykkt óásættanlegs samnings. 24. maí 2026 12:36 „Munum aldrei“ geta tekið upp evru nema koma vinnumarkaðinum fyrst í lag Krónan er ekki orsakavaldur þeirrar þrálátu verðbólgu sem peningastefnunefnd Seðlabankans er núna að reyna ná niður með hækkun vaxta, að sögn seðlabankastjóra, heldur er fremur augljóst að miklar launahækkanir eru að birtast með skýrum hætti í verðbólgutölunum. Hann segir að vinnumarkaðslíkanið sé greinilega „brotið“ og það muni ekki lagast sjálfkrafa við mögulega inngöngu Íslands í evrópska myntbandalagið heldur þurfi að koma því í lag á undan. 22. maí 2026 13:38 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira
Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst. 26. maí 2026 12:01
„Hvað hafa þau að fela?“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera „já, kannski“-manneskja hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu varðar. Hún myndi aldrei tala fyrir samþykkt óásættanlegs samnings. 24. maí 2026 12:36
„Munum aldrei“ geta tekið upp evru nema koma vinnumarkaðinum fyrst í lag Krónan er ekki orsakavaldur þeirrar þrálátu verðbólgu sem peningastefnunefnd Seðlabankans er núna að reyna ná niður með hækkun vaxta, að sögn seðlabankastjóra, heldur er fremur augljóst að miklar launahækkanir eru að birtast með skýrum hætti í verðbólgutölunum. Hann segir að vinnumarkaðslíkanið sé greinilega „brotið“ og það muni ekki lagast sjálfkrafa við mögulega inngöngu Íslands í evrópska myntbandalagið heldur þurfi að koma því í lag á undan. 22. maí 2026 13:38