Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 22. maí 2026 20:16 Heyra má samhljóm með efni tveggja nýrra skýrsla um menntakerfið á Íslandi. Í þeim báðum er skortur á námsgögnum sagður búa til álag á kennara. Vísir/Einar/Bjarni Ný og, því sem næst, svört skýrsla Þróunarsjóðs námsgagna sýnir að fjármagn til námsgagnagerðar hafi rýrnað til muna síðustu tvo áratugi. Formaður sjóðsins segir ósanngjarnt að í umræðunni sé kennurum kennt um lakari námsárangur barna þegar þeir hafi ekki sömu kennslutól og kennarar á hinum Norðurlöndunum
Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna, afhenti fjármálaráðherra í dag skýrsluna sem er sérleg úttekt á námsgögnum á Íslandi. Hún vill að hann grípi boltann því engar alvöru breytingar verði án hans aðkomu. Íris segir að það sé tilfinnanlegur námsgagnaskortur í íslensku menntakerfi. Elstu bækurnar sem hún viti að séu sums staðar notaðar séu frá 1940. „Skorturinn er uppsafnaður og þetta er búið að vera í gangi samfellt í tvo áratugi. Til að setja þetta í samhengi þá erum við með 39% af því fjármagni sem var inni í kerfinu árið 2007. Það er um það bil fjórðungur af því sem lægst gerist annars staðar á Norðurlöndum og þegar þetta er búið að vera í gangi mjög lengi þá er náttúrulega ekkert til. Börnin okkar koma heim með námsbækur sem við sjálf vorum með. Þessar námsbækur voru framleiddar löngu áður en þau fæddust og kannski löngu áður en mamma og pabbi fæddust. Þá er ekki hægt að halda uppi þessum rökum: „Já, þú ert að mennta þig fyrir framtíðina“ þegar námsgögnin koma síðan bara úr fortíðinni.“ Námsgagnaskortur valdi álagi á kennara sem grípi til þess ráðs að útbúa sjálfir námsefni sem hentar nemendahópnum en 70% þeirra segjast í skýrslunni nota heimatilbúið námsefni vegna skorts á vönduðu og fjölbreyttu efni. Íslenskir kennarar sitji ekki við sama borð og kollegar á Norðurlöndum og Írisi þykir miður að kennurum sé oft kennt um lakari námsárangur barna í umræðu um menntamál og þeir bornir saman við kennara á Norðurlöndunum. „Það er eins og við séum að bera fiskvinnslu sem er ennþá með brýni og hníf saman við fiskvinnslu sem er með nýjustu Marel-græjurnar. Svo er spurt: Af hverju er hún ekki að framleiða jafnmikið? Af hverju er árangurinn í þessari vinnslu ekki jafngóður?“ Tölvur og nýjasta tækni heima Kennararnir séu oft og tíðum ekki með í höndunum það sem þeir þurfi til kennslu og þessi staða leiði til þess að nemendur missi eldmóðinn og áhugann. „Ég held það sé ofboðslega mikið bil á milli raunveruleika barna utan skóla og raunveruleika þeirra innan skólastofunnar. Það er alls ekki kennurum að kenna, þeir eru að draga fram alls konar myndbönd og útbúa efni til að reyna að gera námið spennandi en það tekur vinnu og tíma að sanka þessu að sér og þar af leiðandi fer undirbúningstíminn í að búa til námsgögn í staðinn fyrir að þau fái þau í hendurnar og geti nýtt undirbúningstímann í að hugsa hvernig þau geti náð til nemenda.“ Íris segir að fjárfesting í námsgögnum fyrir fjölbreyttar þarfir barna sé hagkvæm til lengri tíma og setur það í samhengi við aukningu á sérkennslu í skólum. „Við erum að horfa á kostnaðaraukningu í sérkennslu en 33% íslenskra nemenda á Íslandi fara einhvern tímann í sérkennslu því við erum ekki að ná til þeirra. Það er mjög dýrt úrræði en hins vegar má sjá á alþjóðlegum rannsóknum að ef þú ert með góð, vönduð og fjölbreytt námsgögn sem eru hönnuð af sérfræðingum með þarfir barna í huga þá nærðu betur til þeirra sem eru með undirliggjandi vanda.“ Skortur á námsgögnum álagsvaldur í starfi kennara Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sýnir fréttamanni helstu niðurstöður skýrslunnar. Hann er mjög áfram um að skýrslan verði ekki bara lesin heldur verði hún að leiða til breytinga og skrefa til bætinga.Vísir/Einar Niðurstöður þessarar úttektar koma heim og saman við raddir kennara sem heyrast í annarri nýrri skýrslu um starfsumhverfi í grunnskólum sem fjallar um álag á kennara. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kölluðu eftir skýrslunni en Páll Björgvin Guðmundsson er framkvæmdastjóri samtakanna. „Margt snýr að hegðun nemenda og hegðunarvanda sem þarf með einhverjum hætti að taka á. Þetta lýtur líka að tíma kennara sem fer meðal annars í námsgagnagerð og svona ýmislegt. Það er líka bara umræðan í samfélaginu um skólamál.“ Hann var spurður hvort hegðunarvandi hefði færst í aukana. „Það virðist vera aukinn vandi á ferðinni og sveitarfélögin eru stöðugt að reyna að finna leiðir í þeim málum. Auðvitað eru hegðunarvandamál af ýmsum toga; allt frá minniháttar hegðunarvandamálum og upp í meiriháttar hegðunarvandamál. Þá er verið að bregðast við með sértækum úrræðum. Það hefur verið skrifað undir viljayfirlýsingu með ríkinu og öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um að byggja bæði sérskólaúrræði til skemmri og lengri tíma.“ Páll kallar eftir því að stjórnvöld stígi betur inn í málin. „Það er svo margt að breytast í okkar samfélagi og sveitarfélögin geta ekki borið ein ábyrgð á því hvernig samfélagsþróunin hefur verið og því sem við erum að fást við. Þau eru mörg viðfangsefnin sem eru á vettvangi sveitarfélaganna.“
Skóla- og menntamál PISA-könnun Grunnskólar Tengdar fréttir Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna kallar eftir því að fjármagn verði aukið til framleiðslu námsgagna án tafar, að miðlæg námsgagnaveita verði sett á stofn og að staðan á námsgögnum verði kortlögð. Skólastarf eigi verulega undir högg að sækja á öllum skólastigum vegna skorts á námsgögnum. Íslensk börn standi ekki jafnfætis börnum á Norðurlöndum og alþjóðlegar mælingar á námsárangri staðfesti það. 22. maí 2026 08:32 Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Fleiri fréttir Ingólfur leysir Baldur af Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld nái tökum á innflytjendamálum Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Sjá meira
Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Stjórn Þróunarsjóðs námsgagna kallar eftir því að fjármagn verði aukið til framleiðslu námsgagna án tafar, að miðlæg námsgagnaveita verði sett á stofn og að staðan á námsgögnum verði kortlögð. Skólastarf eigi verulega undir högg að sækja á öllum skólastigum vegna skorts á námsgögnum. Íslensk börn standi ekki jafnfætis börnum á Norðurlöndum og alþjóðlegar mælingar á námsárangri staðfesti það. 22. maí 2026 08:32