Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2026 20:23 Todd Blanche var áður saksóknari og einkalögmaður Trumps en er nú starfandi dómsmálaráðherra. AP Starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna bætti óvænt í dag við samkomulag dómsmálaráðuneytisins við Donald Trump, forseta, sem tilkynnt var í gær. Auk þess að stofna um tvö hundruð milljarða sjóð til að deila út skaðabótum til bandamanna Trump, felur samkomulagið einnig í sér að Skattinum hefur verið alfarið meinað að rannsaka eða grípa til aðgerða gegn Trump, fjölskyldu hans eða fyrirtæki vegna gamalla skattskýrslna þeirra sem munu hafa verið til rannsóknar um árabil.
Viðbótin felur í sér einstaka beitingu framkvæmdavaldsins, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Hún gengur lengra en að binda enda á rannsókn skattsins og skýlir í raun forsetanum frá frekari rannsóknum á greiðslum hans á sköttum og gjöldum. Tilkynningin í gær snerist um samkomulag sem Todd Blanche, áðurnefndur starfandi dómsmálaráðherra og fyrrverandi einkalögmaður Trumps, gerði við forsetann vegna lögsóknar hans gegn Skattinum. Það samkomulag fól í sér stofnun sjóðs til að greiða skaðabætur til bandamanna Donalds Trump, forseta, sem hafa verið rannsakaðir eða dæmdir af yfirvöldum í forsetatíð Joes Biden. Trump lét á móti af lögsókn sinni gegn Skattinum, sem hann höfðaði vegna þess að skattskýrslum hans var lekið til fjölmiðla. Sérfræðingar, eins og saksóknarar og lagaprófessorar, hafa lengi sagt að krafa Trumps gegn Skattinum byggi á mjög veikum grunni. Þá lét Trump einnig af kröfum sínum um skaðabætur vegna húsleitar í sveitarklúbbi hans árið 2022 og vegna Rússarannsóknarinnar svokölluðu. Trump, synir hans og fyrirtæki þeirra fengu svo formlega afsökunarbeiðni sökum þess að hafa orðið fórnarlömb meintrar vopnvæðingar réttarkerfisins gegn þeim. Ítarlega var fjallað um málið og kröfur Trumps á Vísi í gær. Blanche var spurður út í sjóðinn af þingmönnum Demókrataflokksins á fundi dómsmálanefndar öldungadeildarinnar í dag en þá neitaði hann að útiloka að menn sem hefðu játað að beita lögregluþjóna ofbeldi í árásinni á þinghúsið í janúar 2021, fengju skaðabætur úr sjóðnum. Trump náðaði alla sem að árásinni komu á hans fyrsta degi í embætti í fyrra. Þingmenn Repúblikanaflokksins spurðu Blanche ekkert út í sjóðinn, að þingkonunni Susan Collins undanskilinni. Nýtt skjal birt óvænt í morgun Samhliða yfirlýsingu Blanche í gær var birt níu blaðsíðna dómsskjal um þetta samkomulag. Það innihélt engar upplýsingar um deilur Trumps við Skattinn um skattskýrslur hans, sem hann segir að hafi verið til rannsóknar um árabil. Í öllum þremur kosningabaráttum sínum neitaði Trump að afhenda skattskýrslur, eins og forsetaframbjóðendur vestanhafs gera yfirleitt alltaf, og sagðist ekki geta það vegna yfirstandandi rannsókna. Í dag birtist svo nýtt skjal á vef dómsmálaráðuneytisins þar sem fram kemur að Blanche sé búinn að gera viðbót við samkomulagið frá því í gær. Sú viðbót snýst um að Skatturinn megi héðan í frá ekki rannsaka skattgreiðslur Trumps, fjölskyldumeðlima hans eða fyrirtækja þeim tengdum, vegna skattgreiðslna í fortíðinni og fram til gærdagsins (mánudags). Í frétt Politico er bent á að Blanche sé sá eini sem skrifi undir skjalið og það beri ekki undirskrift eða tilvísun í neinn af fulltrúum skattsins. Þá sýni fylgigögn skjalsins að það hafi verið skannað fyrir birtingu á vefnum klukkan 7:50 að staðartíma í Washington DC í morgun.
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Skattskýrslur Trump birtar á föstudag Donald Trump var á sínum tíma fyrsti forsetaframbjóðandinn í Bandaríkjunum svo áratugum skiptir sem gerði ekki skattskýrslur sínar opinberar í kosningabaráttu, hvorki 2016 né 2020. Að sögn AP verða skattskýrslurnar hins vegar gerðar opinberar næstkomandi föstudag að sögn talsmanns þingnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. 28. desember 2022 07:48 Fyrirtæki Trump gæti verið sótt til saka Embætti umdæmissaksóknari á Manhattan hefur tilkynnt fyrirtæki Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að það íhugi nú að ákæra það vegna hlunninda sem það veitti æðstu stjórnendum þess. Ákærur gætu jafnvel verið gefnar út á næstu dögum. 25. júní 2021 23:47 Gögn benda til „klárra“ skattsvika Donalds Trump Rannsókn New York Times bendir til þess að Trump hafi fengið hundruð milljóna dollara frá foreldrum sínum. Hann og fjölskylda hans hafi beitt svikum til að forðast að greiða skatt af fjármununum. 2. október 2018 19:53 Segja Trump hafa greitt samtals 1.500 dollara í tekjuskatt á tveimur árum New York Times segist hafa undir höndum gögn um skattskil Donalds Trump Bandaríkjaforseta. 27. september 2020 22:17 Fjármálastjóri Trump fékk friðhelgi Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donald Trump í áratugi, fékk friðhelgi í stað fyrir samstarf með saksóknurum sem rannsökuðu Michael Cohen, lögmann Trump. 24. ágúst 2018 16:21 Aftur tapar Trump í skattskýrslumálinu Alríkisdómari í Manhattan hafnaði í morgun málatilbúnaði Bandaríkjaforseta sem hefur því verið gert að láta skattagögn sín af hendi. 20. ágúst 2020 15:20 Trump höfðar mál vegna skattskýrslulöggjafar Donald Trump og Repúblikanaflokkurinn höfða nú mál gegn Kaliforníuríki eftir að löggjöf sem kveður á um að forsetaframbjóðendur þurfi að birta skattskýrslur sínar, vilji þeir taka þátt í forvali forsetakosninga í ríkinu, var samþykkt. 7. ágúst 2019 08:43 Undirbúa slag um skattskýrslur Trump Forsvarsmenn Demókrataflokksins hafa stigið varlega til jarðar varðandi skattskýrslurnar og voru nokkur slík skref tekin í gær. 28. febrúar 2019 14:00 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira
Skattskýrslur Trump birtar á föstudag Donald Trump var á sínum tíma fyrsti forsetaframbjóðandinn í Bandaríkjunum svo áratugum skiptir sem gerði ekki skattskýrslur sínar opinberar í kosningabaráttu, hvorki 2016 né 2020. Að sögn AP verða skattskýrslurnar hins vegar gerðar opinberar næstkomandi föstudag að sögn talsmanns þingnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. 28. desember 2022 07:48
Fyrirtæki Trump gæti verið sótt til saka Embætti umdæmissaksóknari á Manhattan hefur tilkynnt fyrirtæki Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að það íhugi nú að ákæra það vegna hlunninda sem það veitti æðstu stjórnendum þess. Ákærur gætu jafnvel verið gefnar út á næstu dögum. 25. júní 2021 23:47
Gögn benda til „klárra“ skattsvika Donalds Trump Rannsókn New York Times bendir til þess að Trump hafi fengið hundruð milljóna dollara frá foreldrum sínum. Hann og fjölskylda hans hafi beitt svikum til að forðast að greiða skatt af fjármununum. 2. október 2018 19:53
Segja Trump hafa greitt samtals 1.500 dollara í tekjuskatt á tveimur árum New York Times segist hafa undir höndum gögn um skattskil Donalds Trump Bandaríkjaforseta. 27. september 2020 22:17
Fjármálastjóri Trump fékk friðhelgi Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donald Trump í áratugi, fékk friðhelgi í stað fyrir samstarf með saksóknurum sem rannsökuðu Michael Cohen, lögmann Trump. 24. ágúst 2018 16:21
Aftur tapar Trump í skattskýrslumálinu Alríkisdómari í Manhattan hafnaði í morgun málatilbúnaði Bandaríkjaforseta sem hefur því verið gert að láta skattagögn sín af hendi. 20. ágúst 2020 15:20
Trump höfðar mál vegna skattskýrslulöggjafar Donald Trump og Repúblikanaflokkurinn höfða nú mál gegn Kaliforníuríki eftir að löggjöf sem kveður á um að forsetaframbjóðendur þurfi að birta skattskýrslur sínar, vilji þeir taka þátt í forvali forsetakosninga í ríkinu, var samþykkt. 7. ágúst 2019 08:43
Undirbúa slag um skattskýrslur Trump Forsvarsmenn Demókrataflokksins hafa stigið varlega til jarðar varðandi skattskýrslurnar og voru nokkur slík skref tekin í gær. 28. febrúar 2019 14:00