Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 21:08 Sindri mun spila í efstu deild í fyrsta sinn. aðsend / gunnar stígur reynisson Sindri er á leið upp í úrvalsdeild karla í körfubolta í fyrsta sinn í sögu félagsins, eftir 85-80 sigur í oddaleik umspilsins gegn Breiðabliki.
Sindramenn hafa aldrei áður átt lið í efstu deild í rúmlega tveggja áratuga sögu félagsins en þeir munu fylgja Hetti frá Egilsstöðum upp í úrvalsdeildina á næsta tímabili. Umspilsserían vannst á heimavelli en bæði Sindri og Breiðablik unnu sína heimaleiki og því þurfti oddaleik til að útkljá sigurvegara. Breiðablik var sterkari aðilinn framan af og fór inn í hálfleik með 37-44 forystu. Blikarnir náðu síðan öðru góðu áhlaupi í þriðja leikhluta og virtust jafnvel ætla að hafa sigurinn en heimamenn börðust til baka. Sindri er á leið upp í úrvalsdeild. vísir / ernir Aðeins einu stigi munaði milli liðanna þegar fjórði leikhlutinn hófst og hann átti sannarlega eftir að verða spennandi. Liðin skiptust ítrekað á forystunni, Breiðablik leiddi þegar þrjár mínútur voru eftir en svo var Sindri kominn með forystuna þegar tvær mínútur voru eftir. Þá náðu Sindramenn loksins að skapa sér smá andrými og skapa tveggja sókna stigamun. Sindramenn munu styðja sitt lið í úrvalsdeildinni á næsta tímabili. vísir / ernir Breiðablik þurfti því að stilla upp í þriggja stiga skot þegar rúmar tuttugu sekúndur voru eftir. Vojtéch Novák klikkaði hins vegar og þá var sigurinn svo gott sem í höfn hjá Sindra. Leikurinn kláraðist á vítalínunni og Sindri fagnaði fimm stiga sigri sem kemur liðinu upp í úrvalsdeild. Blikar þurfa að bíða eftir öðru tækifæri. Gísli Þórarinn Hallsson og Myles Brandon McCrary voru stigahæstir hjá Sindra með 19 stig hvor í leik kvöldsins. Jason Gigliotti var hins vegar framlagshæstur með 29 punkta, þar spiluðu 14 fráköst hans stóran þátt.
Bónus-deild karla Sindri Breiðablik Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira