Um­fjöllun og við­tal: Haukar - Njarð­vík 80-92 | Heima­vallarréttinum stolið

Kári Mímisson skrifar
Úr leik kvöldsins
Úr leik kvöldsins Vísir/Ernir Eyjólfsson

Það var hart barist þegar Haukar tóku á móti Njarðvík í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Bónus-deildar kvenna nú í kvöld. Þessi lið mættust einnig í úrslitum í fyrra þar sem Haukar sigruðu með einu stigi eftir framlengdan oddaleik. Svo fór að lokum að Njarðvík sigraði með tólf stigum og tekur forystuna í þessu úrslitaeinvígi.

Leikurinn fór vel af stað hér í Ólafssal en jafnræði var á milli liðanna framan af fyrsta leikhluta. Undir lok leikhlutans fengu þó gestirnir úr Njarðvík heldur betur byr í seglin þegar þær settu tvær þriggja stiga körfur í röð niður, þar af eina flautukörfu langt fyrir utan frá Brittanny Dinkins.

Brittany Dinkins með boltann Vísir/Ernir Eyjólfsson

Þennan byr nýttu Njarðvíkingar heldur betur í öðrum leikhluta þar sem þær gjörsamlega tóku yfir leikinn. Liðið spilaði frábærlega sóknarlega á meðan lítið gekk hjá Haukum. Þá fékk lið Njarðvíkur framlag frá ótrúlega mörgum leikmönnum en það var í rauninni alveg sama hvaða leikmaður átti í hlut, það gekk nánast allt. Munurinn var 19 stig þegar liðin héldu til búningsherbergja. Staðan í hálfleik 33-52 fyrir Njarðvík.

En Haukar gáfust ekki upp. Þær spiluðu stórkostlega í þriðja leikhluta og á sama tíma þá hrökk allt í lás bæði sóknarlega og varnarlega hjá Njarðvík. Á ótrúlega skömmum tíma þá tókst Haukum að saxa á forskot Njarðvíkur. Sólrún Inga Gísladóttir setti niður risa þriggja stiga körfu á lokamínútu þriðja leikhluta og minnkaði muninn niður í eitt stig. Hulda María Agnarsdóttir tókst að svara áður en leikhlutanum lauk og munurinn því fjögur stig fyrir fjórða leikhluta.

Hart barist Vísir/Ernir Eyjólfsson

Útliðið var alls ekki gott á þessum tímapunkti leiksins fyrir Njarðvík því Danielle Rodriguez var komin með fjórar villur og þá þurfti Brittanny Dinkins að yfirgefa völlinn um stundarsakir vegna meiðsla. Það var því mikil spennan fyrir fjórða leikhluta.

Þrátt fyrir allt þetta þá verður að segjast að Njarðvíkingar spiluðu ákaflega yfirvegað í fjórða leikhluta og sigldu þessum sigri heim með því að hæga á leiknum. Þá rötuðu lykilskot Hauka ekki niður en þær náðu aldrei að gera neina alvöru atlögu að sigrinum undir lok leiksins. Lokatölur héðan úr Ólafssal, 80-92 fyrir Njarðvík sem taka forystuna í þessu einvígi.

Atvik leiksins

Þriggja stiga karfan sem Brittanny setur undir lok fyrsta leikhluta verður að fá þetta. Hún var langt fyrir utan þegar hún tók þetta skot alveg á sama tíma og flautan gall. Alltaf gott að enda leikhluta vel og Njarðvík tók heldur betur þetta augnablik inn í annan leikhluta.

Stjörnur og skúrkar

Títtnefnd Brittanny Dinkins verður að fá að vera maður leiksins í kvöld. Hún var með 26 stig, 6 fráköst og 8 stoðsendingar. Hin sænska Paulina Hersler átti sömuleiðis góðan dag en hún var með 22 stig. Hjá heimakonum var Krystal Freeman atkvæða mest með 26 stig og 8 fráköst.

Katia Mosengo átti erfiðan dag fyrir Hauka í dag og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá er í rauninni hægt að velja Brittanny líka sem skúrk hér í kvöld fyrir að klúðra síðasta skoti sínu á afar klaufalegan hátt.

Dómarinn

Þeir félagar dæmdu þetta vel í dag og ekki hægt að setja neitt út á þeirra frammistöðu í dag. Það var hiti í þessu og þeir höndluðu það vel.

Stemning og umgjörð

Umgjörðin var frábær hér á Ásvöllum í kvöld en fyrir mitt leiti þá hefði ég viljað sjá enn fleiri áhorfendur hér í Ólafssal í kvöld og ég held að flestir séu mér sammála. Þetta er úrslitaleikur og ég trúi ekki öðru en að við fáum troðfullan Stapaskóla á mánudaginn.

„Ég hef bara trölla trú á mínu liði“

Einar Árni fer yfir stöðuna með sínum konumVísir/Ernir Eyjólfsson

Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var að vonum sáttur með sigur liðsins í kvöld.

„Mér fannst við leggja grunn að þessum sigri í fyrri hálfleik með því að spila frábæran varnarleik. Við gáfum tóninn þar og búum okkur til gott forskot. Það var smá óðagot á okkur sóknarlega í seinni hálfleik sem leiddi þær í auðveldar körfur úr hraðaupphlaupum og þeim tókst í kjölfarið að saxa heldur hratt á okkur. Við náðum gæðunum aftur sóknarlega og siglum þessum sterka sigri í kjölfarið heim.“ Sagði Einar við Andra Má strax að leik loknum.

Einar hrósar liðinu fyrir frábæra fyrri hálfleik og segir að þetta gæti hafa verið það best sem liðið hefur sýnt í vetur.

„Ég er ekkert frá því að þessi fyrri hálfleikur hafi verið bestu 20 mínútur okkar í vetur. Ég sagði við stelpurnar í hálfleik að þetta væri augnablikið til að toppa sig. Við erum á stærsta sviðinu og vitum að ef við ætlum að sigra þetta Hauka lið þá þurfum við að spila frábæran varnarleik sem næst 40 mínútum.“

Eftir frábæran fyrri hálfleik þá tókst Haukum að svara af krafti í þriðja leikhluta. Á ótrúlega skömmum tíma tókst liðinu að minnka forskot Njarðvíkur niður í aðeins eitt stig en það vakti furðu margra af hverju Einar tók ekki leikhlé á þessum tímapunkti.

„Ég hef bara trölla trú á mínu liði. Við höfum áður sýnt það að við getum unnið okkur í gegnum mótlæti. Maður er alltaf að reyna að eiga þessi leikhlé inni fyrir lokasprettinn.“

Hvernig fannst þér svo fjórði leikhluti spilast?

„Mér fannst við gera þetta faglega sóknarlega. Við vorum yfirvegaðar og fengum betra jafnvægi á hringnum. Við erum með 28 stoðsendingar sem ég er hrikalega ánægður með. Þær eru allar að leggja inn eins og í síðasta leik reyndar líka. Það má vera framhald af því.“

Liðin leika næst á mánudaginn í Njarðvík. Einar segist vera spenntur fyrir því verkefni enda hafi liðið ekki unnið Hauka á sínum heimavelli í vetur.

„Við höfum helling að sanna, við höfum ekki unnið Hauka á heimavelli í vetur. Nú þurfum við að sanna okkur gegn þeim á okkar heimavelli. Stuðningsfólkið okkar er geggjað og við erum að fá frábæran stuðning en því miður vantaði stóran hluta af trommusveitinni sem er á Samfés í kvöld og þá er líka fullt af fólki á fótboltaleiknum hjá strákunum í kvöld. Ég er að gera ráð fyrir troðfullri IceMar-höll á mánudaginn sem mun hjálpa okkur að ná í annan sigur.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira