Stjarnan - Tinda­stóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram odda­leik

Kári Mímisson skrifar
Stjarnan - Tindastóll Bónus Deild Karla Vor 2025
Stjarnan - Tindastóll Bónus Deild Karla Vor 2025 Vísir/Diego

Tindastóll knúði fram oddaleik í seríunni gegn Stjörnunni með 97-103 sigri í Garðabænum í kvöld. 

Oddaleikur liðanna fer fram á miðvikudaginn og sigurvegarinn fer í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta.

Stjarnan leiddi lengi vel og var mest þrettán stigum yfir í fyrri hálfleik en Tindastóll var sterkari á lokakaflanum.

Dedrick Basile dró vagninn sóknarlega fyrir Stólana og var stigahæstur með 31 stig.

Óttast var að villuvandræði Tindastóls myndu hafa slæm áhrif á liðið en þrátt fyrir að hafa misst Taiwo Badmus og Adomas Drungilas út af tókst Stólunum að sigla sigrinum í höfn.

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi….

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira