Wembanyama setti met og varði tólf skot en Úlfarnir unnu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2026 10:31 Victor Wembanyama var með þrefalda tvennu í fyrsta leik San Antonio Spurs og Minnesota Timberwolves. getty/Ronald Cortes Minnesota Timberwolves tók forystuna í einvíginu gegn San Antonio Spurs í undanúrslitum Vesturdeildar NBA með 102-104 útisigri í fyrsta leik liðanna í nótt. New York Knicks rúllaði yfir Philadelphia 76ers í Austurdeildinni, 137-98.
Victor Wembanyama fór mikinn í vörninni í leiknum í San Antonio og varði tólf skot sem er met í úrslitakeppni NBA. Frakkinn, sem er nýkrýndur varnarmaður ársins í NBA, skoraði einnig ellefu stig og tók fimmtán fráköst. Hann hitti hins vegar aðeins úr fimm af sautján skotum sínum. Wemby (12 blocks) set a NEW record tonight, for most blocks in an NBA playoff game since 1973–74 👏Breaking a three-way tie at 10 blocks:Hakeem Olajuwon (4/29/1990)Mark Eaton (4/26/1985)Andrew Bynum (4/29/2012)NBA Playoffs presented by @Google pic.twitter.com/KmQ1leS63O— NBA (@NBA) May 5, 2026 Flestum að óvörum sneri Anthony Edwards aftur á völlinn eftir að hafa meiðst í einvígi Minnesota og Denver Nuggets. Hann byrjaði á bekknum en spilaði 25 mínútur. Edwards skoraði átján stig í leiknum, þar af ellefu í 4. leikhluta. ANT MAKES HIS RETURN, WOLVES SECURE WEST SEMIFINALS GAME 1 WIN ‼️🐜 18 PTS (11 in 4Q)🐜 8-13 FGM🐜 25 MIN@Timberwolves will seek a 2-0 series lead on Wednesday at 9:30pm/et on ESPN 🍿NBA Playoffs presented by @Google pic.twitter.com/EgndbOlAp0— NBA (@NBA) May 5, 2026 „Ég veit að viðvera mín róar alla. Ég er ekki að segja að það sé ekki pressa á liðsfélögum mínum en það að vita af mér inni á vellinum og að ég sé klár að spila tekur pressu af öllum. Ég gerði það sem ég geri best, að reyna að setja boltann ofan í körfuna,“ sagði Edwards eftir leikinn. Julius Randle skoraði 21 stig fyrir Minnesota og tók tíu fráköst. Hjá San Antonio var Dylan Harper stigahæstur með átján stig. Knicks átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Sixers að velli í Madison Square Garden. Knicks er fyrsta liðið í sögu NBA sem vinnur þrjá leiki í úrslitakeppninni í röð með 25 stigum eða meira. Sigurinn á Sixers, með 39 stigum, var stærsti sigur Knicks í úrslitakeppninni í sögu félagsins. NEW YORK KNICKS: First team in NBA history to win 3 straight postseason games by 25+ PTS 🤯4/28 vs. ATL: 29-PT W 4/30 vs. ATL: 51-PT W5/4 vs. PHI: 39-PT W New York has outscored opponents by 119 over this 3-game stretch, the largest in NBA postseason history! pic.twitter.com/Jvj8cXlsbo— NBA (@NBA) May 5, 2026 Jalen Brunson skoraði 35 stig fyrir Knicks og hitti úr tólf af átján skotum sínum. OG Anunoby skoraði átján stig og Karl-Anthony Towns og Mikal Bridges sitt hvor sautján stigin. Fátt var um fína drætti hjá Sixers. Paul George skoraði sautján stig og Joel Embiid fjórtán en átta af ellefu skotum sem hann tók í leiknum geiguðu.
NBA Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira