Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Kári Mímisson skrifar 8. maí 2026 22:31 Úr leik kvöldsins Vísir/Ernir Eyjólfsson Það var hart barist þegar Haukar tóku á móti Njarðvík í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Bónus-deildar kvenna nú í kvöld. Þessi lið mættust einnig í úrslitum í fyrra þar sem Haukar sigruðu með einu stigi eftir framlengdan oddaleik. Svo fór að lokum að Njarðvík sigraði með tólf stigum og tekur forystuna í þessu úrslitaeinvígi. Leikurinn fór vel af stað hér í Ólafssal en jafnræði var á milli liðanna framan af fyrsta leikhluta. Undir lok leikhlutans fengu þó gestirnir úr Njarðvík heldur betur byr í seglin þegar þær settu tvær þriggja stiga körfur í röð niður, þar af eina flautukörfu langt fyrir utan frá Brittanny Dinkins. Brittany Dinkins með boltann Vísir/Ernir Eyjólfsson Þennan byr nýttu Njarðvíkingar heldur betur í öðrum leikhluta þar sem þær gjörsamlega tóku yfir leikinn. Liðið spilaði frábærlega sóknarlega á meðan lítið gekk hjá Haukum. Þá fékk lið Njarðvíkur framlag frá ótrúlega mörgum leikmönnum en það var í rauninni alveg sama hvaða leikmaður átti í hlut, það gekk nánast allt. Munurinn var 19 stig þegar liðin héldu til búningsherbergja. Staðan í hálfleik 33-52 fyrir Njarðvík. En Haukar gáfust ekki upp. Þær spiluðu stórkostlega í þriðja leikhluta og á sama tíma þá hrökk allt í lás bæði sóknarlega og varnarlega hjá Njarðvík. Á ótrúlega skömmum tíma þá tókst Haukum að saxa á forskot Njarðvíkur. Sólrún Inga Gísladóttir setti niður risa þriggja stiga körfu á lokamínútu þriðja leikhluta og minnkaði muninn niður í eitt stig. Hulda María Agnarsdóttir tókst að svara áður en leikhlutanum lauk og munurinn því fjögur stig fyrir fjórða leikhluta. Hart barist Vísir/Ernir Eyjólfsson Útliðið var alls ekki gott á þessum tímapunkti leiksins fyrir Njarðvík því Danielle Rodriguez var komin með fjórar villur og þá þurfti Brittanny Dinkins að yfirgefa völlinn um stundarsakir vegna meiðsla. Það var því mikil spennan fyrir fjórða leikhluta. Þrátt fyrir allt þetta þá verður að segjast að Njarðvíkingar spiluðu ákaflega yfirvegað í fjórða leikhluta og sigldu þessum sigri heim með því að hæga á leiknum. Þá rötuðu lykilskot Hauka ekki niður en þær náðu aldrei að gera neina alvöru atlögu að sigrinum undir lok leiksins. Lokatölur héðan úr Ólafssal, 80-92 fyrir Njarðvík sem taka forystuna í þessu einvígi. Atvik leiksins Þriggja stiga karfan sem Brittanny setur undir lok fyrsta leikhluta verður að fá þetta. Hún var langt fyrir utan þegar hún tók þetta skot alveg á sama tíma og flautan gall. Alltaf gott að enda leikhluta vel og Njarðvík tók heldur betur þetta augnablik inn í annan leikhluta. Stjörnur og skúrkar Títtnefnd Brittanny Dinkins verður að fá að vera maður leiksins í kvöld. Hún var með 26 stig, 6 fráköst og 8 stoðsendingar. Hin sænska Paulina Hersler átti sömuleiðis góðan dag en hún var með 22 stig. Hjá heimakonum var Krystal Freeman atkvæða mest með 26 stig og 8 fráköst. Katia Mosengo átti erfiðan dag fyrir Hauka í dag og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá er í rauninni hægt að velja Brittanny líka sem skúrk hér í kvöld fyrir að klúðra síðasta skoti sínu á afar klaufalegan hátt. Dómarinn Þeir félagar dæmdu þetta vel í dag og ekki hægt að setja neitt út á þeirra frammistöðu í dag. Það var hiti í þessu og þeir höndluðu það vel. Stemning og umgjörð Umgjörðin var frábær hér á Ásvöllum í kvöld en fyrir mitt leiti þá hefði ég viljað sjá enn fleiri áhorfendur hér í Ólafssal í kvöld og ég held að flestir séu mér sammála. Þetta er úrslitaleikur og ég trúi ekki öðru en að við fáum troðfullan Stapaskóla á mánudaginn. Bónus-deild kvenna Haukar UMF Njarðvík
Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Íslenski boltinn
Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Íslenski boltinn