Innlent

Nýjustu tölur í Ísa­fjarðar­bæ

Ritstjórn skrifar
Á kjörskrá í Ísafjarðarbæ eru 2.976 manns.
Á kjörskrá í Ísafjarðarbæ eru 2.976 manns.

Á kjörskrá í Ísafjarðarbæ eru 2.976 manns. Níu fulltrúar eiga sæti í sveitarstjórninni.

Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 náði Í-listinn hreinum meirihluta, en einn bæjarfulltrúi hans, Þorbjörn H. Jóhannesson, sagði skilið við meirihlutann árið 2025. 

Breytingar voru þá gerðar á nefndaskipan og embættum, þannig að Sjálfstæðismenn fengu embætti forseta bæjarstjórnar og Framsókn sömuleiðis embætti. Hafa flest mál verið afgreidd með miklum meirihluta bæjarstjórnar eftir að samstarfið sprakk,e n Þorbjörn er nú á lista Miðflokksins. Í-listinn býður ekki fram í kosningunum nú þar sem ekki náðist samkomulag um áframhaldandi samstarf flokkanna sem að honum standa.

Arna Ýr Jónsdóttir gegndi embætti bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar framan af kjörtímabili en tók svo sæti á þingi. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir tók þá við stöðu bæjarstjóra. 

Í Ísafjarðarbæ er meðal annars að finna Ísafjörð, Hnífsdalur, Flateyri, Suðureyri og Þingeyri.

Þeir flokkar sem nú eru í framboði til sveitarstjórnar Ísafjarðarbæjar eru:

  • B listi - Framsóknarflokkurinn og óháðir
  • C listi - Viðreisn
  • D listi - Sjálfstæðisflokkurinn
  • M listi - Miðflokkurinn
  • S listi - Samfylkingin

Þangað til fyrstu tölur berast sýnir grafið hér að neðan niðurstöður síðustu kosninga, það er árið 2022.


Tengdar fréttir

Nýjustu tölur í Reykja­vík

Á kjörskrá í Reykjavík eru 108.545 manns. Tuttugu og þrír borgarfulltrúar eiga sæti í borgarstjórn.

Nýjustu tölur í Kópavogi

Á kjörskrá í Kópavogi eru 30.949 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Nýjustu tölur á Akur­eyri

Á kjörskrá á Akureyri eru 15.547 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Nýjustu tölur í Ár­borg

Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Árborg eru 9.567 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Nýjustu tölur á Akra­nesi

Á kjörskrá á Akranesi eru 6.296 manns. Níu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Nýjustu tölur í Múlaþingi

Á kjörskrá í Múlaþingi eru 3.949 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í sveitarstjórn.

Nýjustu tölur í Skagafirði

Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Skagafirði eru 3.297 manns. Níu bæjarfulltrúar eiga sæti í sveitarstjórn.

Nýjustu tölur í Ölfusi

Á kjörskrá í Ölfusi eru 2.212 manns. Sjö fulltrúar eiga sæti í bæjarstjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×