Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Gunnar Egill Daníelsson skrifar 27. apríl 2026 22:26 Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, á hliðarlínunni. Vísir/Pawel Ekki stóð á svörum hjá Sölva Geir Ottesen þjálfara Víkings þegar hann var spurður hvað hafi breyst á milli hálfleika í 4-0 sigri á ÍA í Bestu deildinni á Víkingsvelli í kvöld. Staðan var markalaus í hálfleik. „
Vindáttin!“ sagði Sölvi Geir í léttum dúr í samtali við Sýn Sport.“ „Ég sagði að við gætum ekki verið að nota það sem einhverja afsökun en vissulega er munur á því að spila með vindinn í bakið. Við áttum erfitt með uppspilið okkar í fyrri hálfleik og ákvarðanatökur þegar við náðum að spila okkur í gegnum blokkina hjá ÍA þá gerðum við ekki nógu vel með boltann. En við vissum að við þyrftum að vera þolinmóðir og halda áfram að herja á þá. Við löguðum aðeins til í pressunni okkar sem mér fannst þá ganga miklu betur. Annars er ég virkilega sáttur með vinnuframlagið hjá okkur. Við sáum það í stöðunni 4-0 hvað menn vildu bara verja markið sitt og það var í gegnum allan leikinn. Menn voru að kasta sér fyrir bolta og þetta var virkilega flott frammistaða. Við þurftum á Ingvari [Jónssyni markverði] að halda í fyrri hálfleik. Það voru nokkur skipti sem þeir ná að opna okkur og þá steig Ingvar hrikalega vel upp. Hann hélt okkur í 0-0 stöðunni sem var mjög mikilvægt á þeirri stundu, að gefa Skagamönnum ekki eldinn sem þeir þurftu til þess að halda áfram. Ingvar gerði hrikalega vel og ég er virkilega sáttur með frammistöðuna,“ bætti þjálfarinn ánægður við. Við vissum þetta Elías Már Ómarsson hefur komið afar sterkur inn í lið Víkings og skorað fimm mörk í fyrstu fjórum deildarleikjum sínum fyrir liðið. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp annað í kvöld. „Já, það er frábært fyrir okkur og hann sjálfan að vera byrjaður að skora. Við vissum þetta, við fengum hann til klúbbsins út af þessu, út af gæðunum sem hann býr yfir. Það er bara frábært að sjá. Það er ekki bara það að hann hafi skorað mörkin. Ég hvet ykkur til þess að horfa á hlaupatölurnar og vinnuframlagið sem hann leggur í þetta. Hann er búinn að koma sterkur inn og sýnir það að hann er tilbúinn að slást fyrir sínu sæti í liðinu. Hann gerir leikmenn betri í kringum sig. Hann er búinn að eiga flotta byrjun hjá okkur, núna er bara að halda áfram,“ sagði Sölvi Geir Ottesen við Sýn Sport.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira