Víkingur R. - ÍA 4-0 | Víkingar kafsigldu Skagamenn í seinni Gunnar Egill Daníelsson skrifar 27. apríl 2026 18:32 Vísir/Pawel Víkingur úr Reykjavík vann öruggan sigur á ÍA, 4-0, í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvelli í kvöld. Víkingur er í öðru sæti deildarinnar með tíu stig og ÍA er áfram í níunda sæti með tvö stig. Bæði lið fengu prýðis færi í fyrri hálfleik. Gísli Laxdal Unnarsson komst næst því að skora fyrir Skagamenn þegar hann með stuttu millibili átti þrumuskot í stöng og svo skot úr vítateignum sem Ingvar Jónsson varði. Elías Már Ómarsson hefði svo stuttu síðar, á 37. mínútu, getað náð forystunni fyrir Víkinga en skot hans við markteiginn fór beint á Árna Marinó Einarsson í marki ÍA. Skagamenn vildu svo fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks þegar Gunnar Vatnhamar rann og sparkaði boltanum í höndina á sér en Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari var ekki á þeim buxunum að flauta á það. Markalaust var því í leikhléi. Í upphafi síðari hálfleiks fengu bæði lið áfram færi til þess að brjóta ísinn en það var Víkingur sem það gerði á 56. mínútu. Daníel Hafsteinsson tók þá hornspyrnu frá vinstri, Ármann Ingi Finnbogason tók skot sem Árni Marinó varði og fór lengra út á móti en þaðan barst boltinn til Elíasar Más Ómarssonar sem þrumaði boltanum upp í þaknetið af stuttu færi. Sjö mínútum síðar tvöfölduðu Víkingar forskot sitt. Elías Már var þá með svæði á vinstri kantinum, gaf fyrir nánast upp í vindinn, boltinn fauk þægilega fyrir Valdimar Þór Ingimundarson sem tók viðstöðulaust skot á lofti nýkominn inn í vítateiginn miðjan og þrumaði boltanum þannig í netið. Sex mínútum fyrir leikslok innsiglaði varamaðurinn Viktor Örlygur Andrason sigurinn með þriðja marki Víkinga. Hann fékk þá boltann rétt við D-bogann og hamraði hann einfaldlega upp í samskeytin vinstra megin. Viktor Örlygur lagði svo upp fjórða markið einni mínútu fyrir leikslok. Hann dansaði þá með boltann í vítateig Skagamanna, tók skot eða sendingu sem rataði til Elíasar Más sem renndi boltanum undir Árna Marinó af stuttu færi. Staðan þá orðin 4-0 og stórsigur Víkingar reyndist niðurstaðan. Atvik leiksins Undir lok fyrri hálfleiks vildu Skagamenn fá vítaspyrnu þegar Gunnar Vatnhamar skaut í höndina á sér. Hann var þá nýrunninn í bleytunni og setti boltann í stoðhöndina á sér og því var ekki annað að sjá en að rétt var að dæma ekki vítaspyrnu. Stjörnur og skúrkar Elías Már Ómarsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik en var svo með sýningu í síðari hálfleik þar sem hann skoraði tvö mörk og lagði annað upp. Elías Már er kominn með fimm mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum fyrir Víking. Viktor Örlygur kom frábærlega inn í leikinn, skoraði stórkostlegt mark og lagði svo upp fjórða og síðasta markið eftir laglegan einleik. Ekkert að því að eiga svona leikmann á bekknum. Ingvar Jónsson í marki Víkings og miðverðirnir Gunnar Vatnhamar og Róbert Orri Þorkelsson stóðu mjög vel fyrir sínu. Erfitt er að finna einhvern ákveðinn skúrk í liði ÍA. Víkingar settu einfaldlega í fluggír og sýndu hvers konar botnlausu gæðum þeir búa yfir. Helst má nefna að varnarlína Skagamanna náði sér ekki á strik í síðari hálfleik eftir að hafa staðið vaktina vel í þeim fyrri. Dómarinn Sigurður Hjörtur Þrastarson og hans teymi var með allt upp á tíu í þessum leik. Stóra ákvörðunin um að dæma ekki vítaspyrnu á Gunnar Vatnhamar sýndist mér vera rétt og annað var einfaldlega rétt dæmt. Frábærlega dæmdur leikur. Stemning og umgjörð Stemningin hefur kannski verið betri í Víkinni en var samt sem áður með miklum ágætum. Víkingar létu vel í sér heyra á löngum köflum og Skagamenn inni á milli en hráslagalegt veðrið hefur vísast aðeins sett strik í reikninginn enda ekki jafn vel mætt á Víkingsvöll og oft áður. Umgjörðin hjá Víkingum er síðan til mikillar fyrirmyndar og vel haldið utan um allt. Besta deild karla Víkingur Reykjavík ÍA Íslenski boltinn