Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. apríl 2026 16:05 Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir geldur varhug við hugmyndum Miðflokksins í leikskólamálum. Vísir/Ívar Fannar Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir Miðflokkinn selja snákaolíu með loforðum sínum um auknar heimgreiðslur til foreldra. Hún segir heimgreiðslur langtum stærra mál en Miðflokkurinn boði, þær muni til lengri tíma skerða tekjur mun meira en sem nemur ávinningi.
Tillögur flokksins eru meðal annars reifaðar í skoðanagrein Thelmu Árnadóttir á Vísi en hún skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi. Hún segir Miðflokkinn í Kópavogi treysta konum til að taka ákvarðanir sem séu þeim og þeirra fjölskyldum fyrir bestu. Brúa þurfi bilið á milli tíma í fæðingarorlofi og fram að leikskólaplássi, og bjóða upp á heimgreiðslur við tólf mánaða aldur barns og auk þess að hækka þær. Leggur flokkurinn til að þær verði hækkaðar upp í 250 þúsund krónur. Konur verði fyrir meira tekjutapi Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir í færslu sinni um málið á Facebook að leikskólakerfið sem byggst hafi upp í Reykjavík á tíunda áratugi síðustu aldar hafi markað straumhvörf í lífi barnafjölskyldna og ekki síst mæðra. Á þeim tíma hafi ýmsum þótt þetta vitleysa, en í dag viti menn betur. „Enn standa fjölskyldur hins vegar frammi fyrir því að brúa bil frá fæðingarorlofi til leikskóla. Og enn er það staðreynd að barneignir hafa miklu meiri áhrif á tekjur kvenna en tekjur karla. Það sem gleymist í umræðunni er að skoða tekjur fjölskyldna í stærra samhengi – og yfir lengra tímabil en á fyrstu tveimur árum eftir fæðingu,“ skrifar ráðherrann. Hún bendir á rannsókn Unu Margrétar Lyngdal sem sýni að barneignir hafi mikil og varanleg áhrif neikvæð áhrif á tekjur kvenna. Barneignir hafi hinsvegar ekki sambærileg áhrif á tekjur karla. „Tekjumissirinn helst til langs tíma og tíu árum eftir fæðingu er tekjumissirinn að meðaltali um 35% samanborið við tekjur karla. Tekjumissir kvenna í kjölfar barneigna getur auðvitað haft mikil áhrif á fjárhagslegt sjálfstæði, t.d. á lífeyrisréttindi.“ Tillögur Miðflokksins feli í sér töpuð réttindi Þá snýr Þorbjörg orðum sínum að Miðflokknum og segir hann boða auknar heimgreiðslur til foreldra. Flokkurinn segist treysta konum og megi skilja þá yfirlýsingu sem pólitísk tímamót. Ráðherra spyr hinsvegar: Hvað þýðir það í reynd að bjóða heimgreiðslur fyrir foreldra sem brúa fyrstu tvö árin í ævi barns? „Tölum hreint út. Þetta snýst ekki bara um nokkra mánuði heima. Heimgreiðslur eru ekki framhald af fæðingarorlofi heldur styrkur sem þýðir að réttindi tapast. Staðreyndin er sú að mæður eru líklegri til að brúa bilið með því að þiggja þessar heimgreiðslur en feður. Með heimgreiðslum sem meginreglu eru skilaboðin út í atvinnulífið að kona sem eignast barn er frá næstu tvö árin. Afleiðingin af því er að konur standa veikar á vinnumarkaði og launamunur kynjanna eykst.“ Hún segir að allar breytingar þurfi að skoða út frá áhrifum. „Allar breytingar þarf að skoða út frá áhrifum. Heimgreiðslur eru langtum stærra mál en að snúast um að fjölskylda fái 100 til 200 þúsund krónur greiddar í einhverja mánuði. Heimgreiðslur til foreldra munu til lengri tíma skerða tekjur mun meira en sem nemur þessum ávinningi. Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía.“ Þurfi stjórnmálafólk sem forgangsraði í þágu barna en sendi ekki bara konur heim Þorbjörg segir að endingu að heildstæða nálgun þurfi og uppbyggingu á leikskólakerfinu. Taka þurfi raunhæf skref áfram og brúa bilið með raunverulegum lausnum og styðja við þátttöku beggja foreldra á vinnumarkaði. „Annars höldum við áfram að færa vandann til, ekki leysa hann. Horfum fram á veginn frekar en að láta blekkjast af sölumönnum snákaolíu. Þó heimgreiðslur hljómi hugsanlega vel í eyru einhverra, þá eru þær engin lausn. Þetta er aðgerð sem færir okkur aftur til fortíðar og snýst ekkert um að auka valfrelsi kvenna,“ skrifar Þorbjörg. „Núna þurfum við stjórnmálafólk sem talar um leikskólakerfið og er tilbúið að setja skólamál í forgang. Tilbúið að forgangsraða í þágu barna og fjölskyldna en ekki bara senda konur heim. Það væri lausn sem íslenskt samfélag getur verið stolt af.“
Leikskólar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Viðreisn Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira