Plokkað af krafti með forsetamaka Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. apríl 2026 09:47 Björn Skúlason forsetamaki setur stóra plokkdaginn formlega. Aðsend Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land í dag. Dagurinn er orðinn fastur liður í vorinu og hefur verið haldinn árlega frá 2018, þegar verkefnið hófst sem samstillt átak til að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið. „
Markmið stóra plokkdagsins er einfalt en mikilvægt: að fegra umhverfið, draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Dagurinn er jafnframt samfélagsverkefni sem sameinar fólk á öllum aldri í jákvæðu og aðgengilegu umhverfisátaki,“ segir í fréttatilkynningu. Rótarýhreyfingin á Íslandi stendur að skipulagningu stóra plokkdagsins með stuðningi frá Landsvirkjun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Aðstandendur hvetja landsmenn alla til að taka þátt, hvort sem það er með því að mæta á skipulagða viðburði í sínu hverfi, standa fyrir eigin plokki eða taka stuttan göngutúr með poka og hanska og láta verkin tala. Sveitarfélög, félagasamtök, vinnustaðir, fjölskyldur og vinahópar geti öll lagt sitt af mörkum og gert daginn að sínum. Rótarý á Íslandi stendur að skipulagningu stóra plokkdagsins.Aðsend Opnunarviðburður stóra plokkdagsins 2026 fer fram klukkan hálf ellefu á Arnarnesvegi milli Garðabæjar og Kópavogs, mæting er við Krónuna á Akrabraut. Þar mun Björn Skúlason forsetamaki setja daginn formlega og hefja opnunarplokkið. „Undanfarin ár hefur stóri plokkdagurinn vaxið jafnt og þétt og orðið að landsátaki þar sem fólk um allt land kemur saman til að bæta sitt nánasta umhverfi. Verkefnið byggir á samvinnu, frumkvæði og ábyrgð og er öllum opið. Aðstandendur leggja áherslu á að dagurinn sé ekki aðeins hreinsunardagur heldur einnig hvatning til aukinnar umhverfisvitundar og betri umgengni allt árið um kring,“ segir í tilkynningu.
Góðverk Sorphirða Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira