Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. apríl 2026 07:25 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti mörgum verkefnum í nótt. Myndin er úr safni. Vísir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einn í tengslum við líkamsárás fyrir utan skemmtistað í Reykjavík í nótt. Þá sinnti lögregla fjölda verkefna sem sneru að áfengis- og fíkniefnaneyslu.
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðan í gærkvöldi og nótt segir að 102 mál hafi verið skráð í kerfi lögreglunnar á tímabilinu. Fjórir voru vistaðir í fangageymslu á tímabilinu. Óskað var eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað vegna einstaklings sem er grunaður um að hafa stolið áfengi á staðnum. Viðkomandi var handtekinn en látinn laus að lokinni skýrslutöku. Þá bárust lögreglu nokkrar aðstoðarbeiðnir vegna ofurölvi einstaklinga sem voru til vandræða. Tveir voru vistaðir í fangageymslu af þeim sökum. Höfð voru afskipti af einstaklingi sem var að trufla störf lögreglu. Sá neitaði að gefa upp hver hann væri og var því handtekinn. Þegar komið var á lögreglustöð neitaði einstaklingurinn enn að gefa upp hver hann væri og verður því vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að komast að því hver hann er. Þá sinntu lögreglumenn allra fjögurra lögreglustöðva höfuðborgarsvæðisins umferðareftirliti. Dagbók lögreglu telur fimm mál þar sem einstaklingur er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í einu þeirra reyndist ökumaður með tvö eggvopn á sér. Sömuleiðis eru minnst fimm grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis á tímabilinu en í dagbókinni segir að lögregla hafi sinnt fimmtán öðrum umferðarmálum í gærkvöldi og í nótt.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira