Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Nespresso 17. apríl 2026 08:31 Nespresso fagnar 40 ára afmæli með nýjungum, upplifun og ábyrgð í fyrirrúmi og býður til veislu í Kringlunni á morgun, laugardag. Í ár fagnar Nespresso 40 ára afmæli á heimsvísu og af því tilefni er ýmislegt spennandi fram undan hér á landi. Við settumst niður með Ívari Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra Nespresso á Íslandi, og fengum að heyra meira um nýja kaffivél, þróun markaðarins og áherslur fyrirtækisins.
Ný kynslóð kaffivéla Nespresso hefur verið leiðandi í kaffimenningu um árabil. Hvað er nýtt hjá ykkur þessa dagana? „Við erum sérstaklega spennt fyrir nýjustu viðbótinni í okkar vörulínu, Vertuo Up kaffivélinni. Hún er hönnuð með einfaldleika í huga en án þess að gefa neitt eftir þegar kemur að gæðum og glæsileika. Með einum takka getur notandinn útbúið allt frá litlum espresso yfir í stærri kaffibolla og jafnvel lagað drykki fyrir ískaffi eða mjólkurdrykki með nýjum Coffee Creations eiginleika. Vélin hitnar á einungis þremur sekúndum og er komin með sömu lokun og á Original vélunum.“ Ívar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Nespresso á Íslandi. Hvað gerir Vertuo tæknina svona sérstaka? „Það sem gerir Vertuo línuna einstaka er tæknin sjálf. Vélin les strikamerki á hverju hylki og stillir sjálfkrafa hitastig, vatnsmagn, snúningshraða og uppáhellingartíma. Þetta tryggir stöðug gæði í hverjum einasta bolla. Útkoman er ilmandi gott kaffi með mjúkri crema, eða kaffifroðu, sem margir þekkja og kunna að meta.“ Afmælishátíð í Kringlunni Þið eruð líka að fagna stórum tímamótum í ár? „Já, Nespresso er 40 ára í ár og við viljum fagna því með viðskiptavinum okkar. Laugardaginn 18. apríl verðum við með afmælishátíð í Kringlunni þar sem allir sem versla fá blöðru með vinningi. Heildarverðmæti vinninga er um ein milljón króna, svo það er tilvalið að kíkja við og gera góð kaup. Vinningarnir geta verið afslættir, fylgihlutir eða jafnvel ný Vertuo Up kaffivél.“ „Við erum einnig mjög stolt af nýju versluninni okkar í Kringlunni. Eftir brunann á sínum tíma var tekin ákvörðun um að færa hana til og einfalda útlitið. Nú er hún staðsett við rúllustigana Hagkaupsmegin á fyrstu hæð.“ Endurvinnsla á Íslandi Nespresso hefur lagt mikla áherslu á sjálfbærni. Hvað er að gerast á þeim vettvangi? „Við erum mjög stolt af því að hafa, í samstarfi við Íslenska gámafélagið, fært stóran hluta endurvinnslunnar heim til Íslands. Áður þurfti að flytja hylkin erlendis, en nú eru þau tætt hér heima og kaffikorgurinn skilinn frá álinu. Korgurinn er nýttur í moltugerð og álið fer í endurvinnsluferli líkt og annað ál.“ „Ál er einstakt efni, það tapar aldrei gæðum við endurvinnslu. Þess vegna geta hylkin orðið að nýjum vörum aftur og aftur. Sem dæmi um þetta þá eru 80-85% af Nespersso hylkjunum gerð úr endurunnu áli. Við sjáum líka að viðskiptavinir okkar taka þessu mjög vel; um 77% þeirra endurvinna hylkin sín, sem er með því hæsta sem gerist í heiminum. Við erum afar þakklát fyrir þann stuðning.“ Alþjóðlegt vörumerki í þróun Það hafa einnig orðið breytingar á alþjóðlegum vettvangi hjá Nespresso? „Já, það vakti mikla athygli nýlega að söngkonan Dua Lipa hefur tekið við sem alheims sendiherra Nespresso. Hún tekur við keflinu af George Clooney sem hefur verið með okkur í yfir tvo áratugi. Þetta endurspeglar vel hvernig vörumerkið er í stöðugri þróun og tengist nýjum kynslóðum.“ Breyttar kaffivenjur Hvernig sérðu framtíð kaffimenningar á Íslandi? „Við sjáum að neytendur vilja bæði gæði og þægindi. Fólk vill geta notið kaffihúsaupplifunar heima hjá sér, á sínum forsendum. Lausnir eins og Vertuo Up passa vel inn í það, sérstaklega þegar fleiri en einn á heimilinu drekka kaffi og allir vilja sitt eigið.“ Neysluvenjur Íslendinga hafa breyst mikið á síðustu árum. Fólk leggur sífellt meiri áherslu á gæði og bragð og vill geta valið það sem hentar hverju sinni. „Við hvetjum fólk til að koma í verslanir okkar í Kringlunni, Smáralind eða á Akureyri og smakka. Þar hjálpa kaffisérfræðingar við að finna rétta bollann en úrvalið er mikið, um 70 tegundir í Original og Vertuo línunum.“ „Við sjáum einnig aukna eftirspurn eftir koffínskertu kaffi og fjölbreyttum kaffidrykkjum, eins og ískaffi og mjólkurdrykkjum. Þar höfum við lagt áherslu á að bjóða breitt úrval sem mætir þessum breyttu þörfum.“
Matur Umhverfismál Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Fleiri fréttir Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Bylgjulestin fer norður á morgun Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Ný bókunarvél hjá Úrval Útsýn og fjöldi spennandi ferðamöguleika Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Myndaveisla: Fjör í Hafnarfirði um helgina Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Sjá meira