Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Atli Ísleifsson skrifar 13. apríl 2026 07:13 Hiti verður á bilinu einn til níu stig. Vísir/Vilhelm Smálægðir verða á sveimi kringum landið í dag og á morgun og má þá gera ráð fyrir fremur hægum austlægum vindum í flestum landshlutum og víða rigningu eða skúrum. Þó verður þurrt að mestu norðan jökla á morgun.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Gera má ráð fyrir þremur til tíu metrum á sekúndu en norðaustan 10 til 18 metrum á Vestfjörðum fram eftir degi. Lægir þar síðdegis. Hiti verður á bilinu einn til níu stig, en frystir víða norðan- og austanlands undir kvöld. Á þriðjudagskvöld nálgast úrkomuskil landið úr suðri og verður vindur þar á bilinu 15-23 m/s aðfaranótt miðvikudags, hvassast í Öræfum. Fljótlega dregur úr vindi undir morgun. Útlit er fyrir talsvert mikla rigningu suðaustan- og austantil fram yfir hádegi, en síðdegis fer að létta til austanlands. Þegar skilin ganga yfir hlýnar heldur frá því sem áður var, með hita allt að 10 stigum í flestum landshlutum. Þetta hlýja loft virðist þó ætla að víkja fyrir heldur kaldara lofti sem færist yfir vesturhluta landsins seinnipart vikunnar. Þá munu hægar suðlægar, en úrkomulitlar, áttir ráða ríkjum. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Rigning eða slydda með köflum sunnan og suðaustantil en annars skýjað með köflum og þurrt að mestu. Austan 10-18 og rigning suðaustantil um kvöldið, hvassast syðst og í Öræfum. Hiti 2 til 10 stig. Á miðvikudag: Austlæg eða breytileg átt, víða kaldi eða stinningskaldi og rigning, en talsverð úrkoma suðaustan- og austanlands. Lægir síðdegis og dregur úr úrkomu. Hiti 2 til 10 stig. Á fimmtudag: Sunnan 3-10 og rigning með köflum en yfirleitt bjart með köflum á Norður- og Suðausturlandi.Hiti 2 til 9 stig. Á föstudag: Hæg suðlæg átt og smáskúrir sunnan- og vestanlands, en annars bjart með köflum. Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag: Útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt og rigningu, en þurrt að mestu norðaustanlands. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Útlit fyrir fremur hæga norðlæga eða breytilega átt og skýjað með köflum. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Sjá meira