Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Árni Sæberg skrifar 31. mars 2026 11:29 Skúli Tómas starfar á Landspítalanum í Fossvogi. Vísir Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir hefur verið ákærður fyrir manndráp af ásetningi í tilfelli eins sjúklings í hans umsjá. Lögregla hafði andlát sex sjúklinga til skoðunar og felldi rannsókn fimm þeirra niður.
Þetta staðfestir Almar Þór Möller, verjandi Skúla Tómasar, í samtali við Vísi. Hann segir að ákæra hafi verið gefin út í gær. „Það er ánægjulegt að fimm málanna voru felld niður en vonbrigði að ákært sé vegna eins tilvikanna. Ég á erfitt með að skilja þá ákvörðun og trúi því að fyrir dómi verði upplýst að enginn refsiverður verknaður hafi átt sér stað.“ Ákært sé fyrir manndráp af ásetningi og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brot á sömu lögum. Gerð sé krafa um að Skúli Tómas verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar auk þess sem einkaréttarkrafa sé gerð. Rannsókn lögreglu á andlátum sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem Skúli Tómas starfaði, hófst árið 2021. Sem áður segir var rannsókn fimm þeirra felld niður en ákært vegna eins þeirra. Hann var sendur í leyfi vegna málsins í maí 2022 en sneri aftur til starfa á Landspítalanum í janúar árið eftir. Þá sinnti hann ekki sjúklingum þar sem hann var með takmarkað lækningaleyfi vegna málsins. Árið 2024 endurheimti hann lækningaleyfi og hóf þá að sinna sjúklingum á ný. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala hefur vinnuframlag Skúla Tómasar verið afþakkað eftir ákæra var gefin út á hendur honum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Læknamistök á HSS Lögreglumál Dómsmál Tengdar fréttir Lýsa alvarlegri vanrækslu og kvölum móður sinnar sem lést eftir mistök á HSS Móðir okkar hefði ekki þurft að deyja, segja dætur konu sem lést í umsjá læknis sem grunaður er um röð mistaka í störfum sínum. Þær segja móður þeirra hafa þurft að þola hræðilegar kvalir, meðal annars vegna sýkinga sem hafi verið illa meðhöndlaðar. Læknirinn er grunaður um að hafa sett konuna í lífslokameðferð að óþörfu. 18. ágúst 2021 19:30 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Fleiri fréttir Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Sjá meira
Lýsa alvarlegri vanrækslu og kvölum móður sinnar sem lést eftir mistök á HSS Móðir okkar hefði ekki þurft að deyja, segja dætur konu sem lést í umsjá læknis sem grunaður er um röð mistaka í störfum sínum. Þær segja móður þeirra hafa þurft að þola hræðilegar kvalir, meðal annars vegna sýkinga sem hafi verið illa meðhöndlaðar. Læknirinn er grunaður um að hafa sett konuna í lífslokameðferð að óþörfu. 18. ágúst 2021 19:30