Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. mars 2026 06:31 Kristín Sigurðardóttir var gestur í heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu. Aðsend Slysa- og bráðlæknir segir vannýtt tækifæri innan heilbrigðiskerfisins í heilsueflingu og forvörnum. Hún telur venjur nútímasamfélagsins leiða til svokallaðrar „birtuvillu“ þar sem líkamsklukkan ruglast. Sjálf notar hún þá ekki sólarvörn en tekur fram að sólbruni geti haft alvarlegar afleiðingar.
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, telur að veruleg tækifæri felist í því að beina meiri athygli að lífsstíl og umhverfi til að koma í veg fyrir ýmis einkenni og veikindi frekar en að bregðast fyrst við þeim þegar þau eru komin fram. Stór hluti þeirra vandamála sem kerfið glímir við í dag tengist lífsstíl og umhverfisþáttum sem hægt væri að koma í veg fyrir. „Í dag eru langtíma lífstíls- og samfélagssjúkdómar kominir yfir áttatíu prósent af byrði heilbrigðiskerfisins. Þannig að ég horfi á það með þeim augum. Allt þetta fólk sem gæti liðið miklu betur og þyrfti jafnvel ekki að vera svona lasið eða slasað,“ segir Kristín í nýjasta þætti Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms. Verði til „birtuvilla“ Eitt af áhugamálum Kristínar er áhrif ljóss og myrkurs á líkamsklukkuna. Nær allar lífverur hafi þróast í takt við snúning jarðar en í nútímasamfélagi verji fólk nær öllum stundum innandyra í gervibirtu. Því verði til svokölluð „birtuvilla“ þar sem líkamsklukkan missir taktinn við náttúrulega birtu. Slík villa geti haft veruleg áhrif á lífsgæði einstaklinga og mögulega aukið líkurnar á ýmsum veikindum. Kristín telur að morgunbirtan sé lykilatriði til að stilla líkamann af. Þá þurfi að huga að því að horfa ekki of mikið á skjái sem gefi frá sér bláa geisla seinnipartinn og á kvöldin. „Ég mæli almennt með því að fólk sé ekki með sólgleraugu, og ef það vill nota slík gleraugu þá sé það helst heima hjá sér eftir kvöldmat til þess að taka út bláa ljósið úr gervibirtunni,“ segir Kristín. Geri húðina brúna og auki kynhvöt Þrátt fyrir að mikilvægi sólarvarnarinnar hafi verið ítrekað undanfarin ár bendir Kristín á að sólarljósið sé jafnframt lífsnauðsynlegt. Oftar en ekki sé varað við UVB-geislum en engu að síður þurfi fólk á þeim að halda til að viðhalda heilsu. Auk þess að sjá um D-vítamínframleiðslu líkamans örvi UVB-geislarnir framleiðslu á svokölluðu MSH-hormóni. Hormónið geri ekki einungis húðina brúna heldur eigi þátt í því að halda ónæmiskerfinu sterku, bæta orkubúskap líkamans og jafnvel auka kynhvöt. Notar sjálf ekki sólarvörn „Við eigum ekki að sólbrenna. Alveg kýrskýrt,“ segir Kristín. Hins vegar þyki henni miður þegar foreldrar, í bestu trú, pakki börnum sínum inn í sólarvörn og sólgleraugu jafnvel að vetrarlagi á Íslandi þegar UV-geislunin er nánast engin. Hún líkir því að fara út í sólina við það að æfa fyrir maraþon. Líkaminn þurfi að fá að aðlagast og þjálfa sig hægt og rólega, en ef fólk noti sólarvörn ítrekað geti líkaminn ekki stillt sig af. Sjálf forðast Kristín að nota sólarvörnina og reynir að njóta sólarinnar á hverjum degi í tíu til þrjátíu mínútur í senn. Eftir það leiti hún frekar í skuggann. Þegar dvalið er í skugga af trjám úti í náttúrunni magnast upp sá hluti sólarinnar sem er innrauður, sem veitir líkamanum áframhaldandi græðandi orku án þess að húðin brenni af útfjólubláum geislum.
Heilbrigðismál Mest lesið Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Lífið Hvað veistu um… IKEA? Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Lífið Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Lífið Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert Tíska og hönnun Eignaðist fyrstu milljónina fimmtán ára og keypti íbúð átján ára Lífið Kúltúrhjón selja sjarmerandi eign í 101 Lífið Lítil prinsessa á leiðinni hjá Sóleyju Smáradóttur Lífið Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju Lífið Fleiri fréttir Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Hvað veistu um… IKEA? Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Kúltúrhjón selja sjarmerandi eign í 101 Rihanna stóð á milli Péturs og þriggja milljóna Lítil prinsessa á leiðinni hjá Sóleyju Smáradóttur Nýjasti spennutryllir Hildar Knúts gerður að kvikmynd Eignaðist fyrstu milljónina fimmtán ára og keypti íbúð átján ára Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju Siggi og Alma orðin foreldrar Sassa selur í Skerjafirði Lily Allen orðin að listaverki „Af hverju ertu ekki búinn að hringja í mig?“ Kynusli, ærslagangur og nasistar í kjallaranum Sveppi og Sigurður tignarlegir aftur á bak Einfalt ráð til að venja barn strax af bleyju Þungunarrof megi vera auðvelt val Eitt frumlegasta hús Reykjavíkur á sölu „Heimurinn bara kollvarpaðist“ Tónlistarpar á von á sumarbarni Sjóðheitt listapar selur smart einbýli Skálmöld gæddi sér á hráefni sögulegs „ógeðsdrykkjar“ Annie Mist gaf prinsinum nafn Geislandi gellur í þrumustuði á Edition „Kynslóðin sem ól okkur upp er meira og minna meðvirk” Getur varla horft á sjálfan sig eftir eineltið Stjörnulífið: „Bráðum fær hann að afmeyja mig“ Fólk með kynlífsvanda fær ekki þá hjálp sem það þarf Sjá meira