Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. mars 2026 07:41 Redzepi hefur verið sakaður um að hafa beitt fjölda starfsmanna andlegu og líkamlegu ofbeldi. Getty/Martin Philbey Bandarísku fyrirtækin American Express og Blackbird hafa hætt við að styrkja pop-up viðburði danska veitingastaðarins Noma í Los Angeles, sem hefjast í dag. Ástæðan eru ásakanir um ofbeldi á hendur yfirmatreiðslumeistaranum René Redzepi.
New York Times greindi frá því á dögunum að fjöldi fyrrverandi starfsmanna Noma hefði ásakað Redzepi um andlegt og líkamlegt ofbeldi. Hann er meðal annars sagður hafa niðurlægt undirmenn fyrir framan aðra starfsmenn, hrint þeim og kýlt. „Að mæta í vinnuna var eins og að fara í stríð,“ er haft eftir matreiðslumanni sem nú starfar í Lundúnum. „Þú þurftir að neyða þig til að vera sterkur, sýna ekki ótta.“ Veitingastaður Noma í Kaupmannahöfn, sem opnaði árið 2004, hlaut þrjár Michelin-stjörnur og var fimm sinnum valinn besti veitingastaður heims. Redzepi var í kjölfarið slegin til riddara af Margréti Danadrottningu. Redzepi og núverandi samstarfsmenn hans hafa sagt að hegðunin sem fyrrverandi starfsmenn hafa lýst heyri sögunni til en þeir sem stigið hafa fram benda á að matreiðslumaðurinn hafi aldrei verið látinn svara til saka eða axla ábyrgð á neinn hátt. Árið 2023 tilkynnti Redzepi að hann hygðist loka Noma sem veitingastað og einbeita sér að tilraunaeldhúsi sínu og pop-up viðburðum um allan heim. American Express og Blackbird höfðu keypt fjölda miða á pop-up viðburðin sem hefst í Los Angeles í dag og stendur yfir í fjóra mánuði. Fyrirtækin segjast nú munu endurgreiða viðskiptavinum miðana og styrkja samtök sem starfa í þágu starfsmanna í veitingaiðnaðinum. Redzepi hefur svarað ásökununum og segist ekki muna eftir öllu sem þar er lýst. Þær endurspegli hins vegar hegðun sem hann kannast við og segist skilja að framkoma hans hafi skaðað samstarfsfólk hans. Hann hefur beðist afsökunar og sagst hafa leitað sér aðstoðar.
Danmörk Matur Veitingastaðir Ofbeldi á vinnustað Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira