England - Ísland 2-0 | Tveggja marka tap gegn Evrópumeisturunum Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar 7. mars 2026 11:34 Spain v Iceland - 2027 FIFA Women's World Cup Qualifier CASTELLON DE LA PLANA, SPAIN - MARCH 03: Team of Iceland huddle prior to the 2027 FIFA Women's World Cup Qualifier match between Spain and Iceland at Nou Castalia on March 03, 2026 in Castellon de la Plana, Spain. (Photo by Omar Arnau/Quality Sport Images/Getty Images) England vann 2-0 sigur gegn Íslandi í undankeppni HM kvenna í fótbolta þökk sé marki og stoðsendingu frá Lucy Bronze. Stelpurnar okkar eyddu mestum tíma í að verjast í dag og gerðu það nokkuð vel, en tvær fyrirgjafir frá Englendingum rötuðu á réttan stað. Lucy Bronze skallaði boltann í netið í fyrra skiptið eftir fyrirgjöf Laureen James. Georgia Stanway skoraði svo seinna markið eftir fyrirgjöf frá hægri bakverðinum Bronze. England tyllir sér þar með í efsta sæti riðilsins með fullt hús stiga en Ísland er enn án stiga eftir fyrstu leikina, gegn Englandi og Spáni. Úkraína og Spánn mætast svo síðar í dag. Nánari umfjöllun væntanleg á Vísi von bráðar… HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta