Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Aron Guðmundsson skrifar 22. febrúar 2026 12:16 Hinn norski Sturla Holm Laegreid gæti talist vera senuþjófur Vetrarólympíuleikanna Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina lýkur í dag og höfum við fengið að fylgjast með mögnuðum afrekum íþróttafólks í algjörum heimsklassa. Leikarnir hafa líka boðið upp á athyglisverðar fréttir sem hafa vakið töluverða athygli. Hér eru þær dregnar saman í einn pakka.
Trump og „algjör lúser“ Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði við upphaf Vetrarólympíuleikanna að erfitt væri að hvetja áfram bandaríska ólympíufara sem tjá sig gegn stefnu ríkisstjórnarinnar og kallaði einn slíkan gagnrýnanda „algjöran lúser“ sem hefði kannski átt að vera heima. Vonn og fallið hrikalega Skíðadrottningin Lindsey Vonn upplifði brostna drauma í fyrstu ferð á leikunum Hún lagði af stað með slitið krossband og féll í fyrstu ferð með hrikalegum afleiðingum, brotnaði illa og á fyrir höndum langa endurhæfingu. Medlíur sem tóku að skemmast Medalíur einhverra verðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum héldust ekki heilar lengi og ullu skipuleggjendum leikanna töluverðum höfuðverk. Hjálmur Úkraínumannsins Úkraínski Ólympíufarinn Vladyslav Heraskevych ætlaði að gera sitt til að minnast landa sinna sem hafa verið drepnir frá því að innrás Rússa hófst. Alþjóða Ólympíusambandið (IOC) bannað honum það. Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarnar viku hafa verið hans verstu á ævinni. Smokkarnir kláruðust Það átti að vera nóg af smokkum í boði í Ólympíuþorpi keppenda í Cortina á Vetrarólympíuleikunum en þeir voru ekki lengi að klárast. Skandall í krullu „Þú mátt fokka þér,“ sagði hinn kanadíski Marc Kennedy þegar Svíar sökuðu hann um svindl í krullu á Vetrarólympíuleikunum í gær. Stóra typpamálið Málið, sem er þekkt sem „typpamálið“, tók yfir leikana í Mílanó-Cortina á furðulegan hátt, með óstaðfestum fullyrðingum um að karlkyns skíðastökkvarar hafi gripið til þess að sprauta hýalúrónsýru í kynfæri sín til að ná samkeppnisforskoti. Skógarferð Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath klúðraði seinni svigferðinni sinni á Vetrarólympíuleikunun eftir að hafa verið með forystu eftir fyrri umferðina. Hann tók vonbrigðunum vægast sagt mjög illa. Sem betur fer ekki úlfur Hundur hljóp inn á brautina og stal sviðsljósinu í liðasprettkeppni í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum. Einn keppandinn hélt að hundurinn væri úlfur, það er vel hægt að skilja það. Drukkin í beinni Ein þekktasta íþróttafréttakona Ástralíu baðst afsökunar á því að hafa verið drukkin í beinni útsendingu frá Vetrarólympíuleikunum. Forsætisráðherra Ástralíu sýndi henni fullan skilning. Ekki fullur - Aldrei drukkið áfengi Skíðakappinn Jón Erik Sigurðsson vakti mikla athygli þegar hann birti „Day of fun“ myndband með vinum sínum degi áður en hann keppti á Vetrarólympíuleikunum. Jón Erik þurfti að árétta eftir birtingu myndbandsins að hann drekkur ekki áfengi.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Enski boltinn Fleiri fréttir Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Sjá meira