Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 17:24 Frá hernaðaræfingu íranskra hersveita undir forystu sjóherdeildar Íranska byltingarvarðarins. launched by the Naval Forces of the Islamic Revolutionary Guard Corps, is being carried out in the Persian Gulf and the Strait of Hormuz on February 16, 2026. Getty/Islamic Revolutionary Guard Corps Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. Boðað hafði verið til mótmæla við utanríkismálaráðuneytið á morgun til að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld myndu skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök.
Í tilkynningu frá ESB í gær segir að í lok janúar hafi utanríkismálanefnd sambandsins komist að pólitísku samkomulagi um að setja Íranska byltingarvörðinn, IRGC, á hryðjuverkalista ESB. Með ákvörðun ráðherraráðs ESB frá í gær eru samtökin formlega komin á hryðjuverkalista Evrópusambandsins auk þess að sæta þvingunum á borð við frystingu fjármuna og öðrum efnahagsþvingunum sem beinast gegn Íranska byltingarverðinum og tengdum aðilum. Alls sæti þrettán einstaklingar og 23 hópar þvingunum og takmarkandi aðgerðum sem fylgja því að vera á hinum svokallaða hryðjuverkalista ESB. Samkvæmt íslenskum lögum um þvingunaraðgerðir er gert ráð fyrir að Ísland fylgi sjálfkrafa aðgerðum ESB um þvingunaraðgerðir. Þannig taki Ísland þegar þátt í aðgerðum gegn Íranska byltingarverðinum þar sem viðbætur á hryðjuverkalistann taki sjálfkrafa gildi hér á landi. Líkt og Vísir greindi frá í gær hefur íslensk-íranska samfélagið á Íslandi boðað til mótmæla við utanríkisráðuneytið á morgun til að krefjast þess að íslenska ríkið skilgreini íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Með ákvörðun ESB í gær má þannig ætla að það sé raunin hér á landi einnig. „IRGC ber ábyrgð á morðum á yfir 36.500 Írönum, þar á meðal 200 börnum. Samtökin stýra aftökum á mótmælendum og ofsóknum á hendur heilbrigðisstarfsfólki sem hefur verið fangelsað og pyntað fyrir það eitt að sinna særðum,“ sagði meðal annars í tilkynningunni. Haldinn var aukafundur í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í lok janúar, að frumkvæði Íslands, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ávarpaði ráðið. Þorgerður hefur áður lýst þeirri skoðun sinni að hún álíti Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. „Við erum að skoða lagalega grundvöllinn fyrir slíkri skilgreiningu, en styðjum eindregið þessa pólitísku yfirlýsingu ESB og deilum þeirri skoðun að þetta séu hryðjuverkasamtök,“ sagði Þorgerður til að mynda í samtali við mbl.is í byrjun mánaðar. Hörð mótmæli gegn klerkastjórninni stóðu yfir frá áramótum og heilbrigðisstarfsfólk í Íran sagði í lok janúar að allt að þrjátíu þúsund manns hefðu verið drepnir í aðgerðum stjórnvalda gegn mótmælendum. Íranir héldu árlega heræfingu í gær ásamt Rússum á sama tíma og spennan fyrir botni Miðjarðarhafs hefur magnast. Bandaríkjamenn hafa nú þegar aukið viðbúnað sinn á svæðinu og er hernaðarmáttur Bandaríkjanna sagður ekki hafa verið eins mikill á svæðinu síðan innrásin í Írak var gerð árið 2003.
Utanríkismál Hryðjuverkastarfsemi Íran Evrópusambandið Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira