Sautján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Aron Guðmundsson skrifar 13. febrúar 2026 08:32 Ronald hefur náð eftirtektarverðum árangri í hnefaleikum þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað að æfa íþróttina fyrir þremur árum síðan. Vísir/Anton Brink Hinn sautján ára gamli Ronald Bjarki Mánason, hefur unnið hvert alþjóðalega mótið á fætur öðru í hnefaleikum og vakið verðskuldaða athygli þrátt fyrir að hafa aðeins byrjað að stunda íþróttina fyrir þremur árum síðan. Þjálfari Ronalds segir hann draum hvers þjálfara og telur drenginn unga geta farið alla leið.
Átján ára gaur sem er fimmtíu kíló, vinnur á Dominos og borðar ekki pizzu því hann ætlar að vera góður í hnefaleikum Það segir ógeðslega mikið Á undanförnum níu mánuðum hefur Ronald látið til sín taka og unnið fimm alþjóðleg stórmót. Nú síðast hafði hann betur gegn margföldum írskum meistara með fjórfalt fleiri bardaga á ferilskránni og það á vel þekktu móti. Frammistaða Íslendingsins unga vakti athygli hjá ríkjandi WBC heimsmeistaranum Charlie Edwards. Spólum til baka þrjú ár aftur í tímann, þá mætti Ronald á sína fyrstu æfingu í hnefaleikum. „Ég var nýhættur í fótbolta á þeim tíma, bara eins og flestir og var ekki að gera neitt annað en að hanga heima og spila FIFA,“ segir Ronald í viðtali við íþróttadeild Sýnar „Frændi minn var á þeim tíma í boxi og var einmitt að æfa undir stjórn Davíðs sem er núna þjálfarinn minn. Davíð bauð mér að koma á æfingu og prófa, ég tók nokkra einkatíma hjá honum, fór svo á grunnnámskeið og byrjaði svo að æfa á fullu eftir það.“ Það var ekki aftur snúið hjá drengnum unga sem hefur hlotið gífurlega reynslu á skömmum tíma í íþróttinni. „Í byrjun vildi ég bara gera frænda minn stoltan, reyna vera góður í þessu og sýna mig fyrir honum en svo hélt þetta bara áfram, ég fór að keppa og tók framförum eftir því sem á leið.“ Ronald Bjarki hefur átt góðu gengi að fagna upp á síðkastiðVísir/Anton Brink Draumur hvers þjálfara Ronald æfir undir handleiðslu Davíðs Rúnars Bjarnasonar hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur. „Það er nú ekkert brjálæðislega langt síðan að Ronald kom hingað á sína fyrstu æfingu en hann er draumur hvers þjálfara,“ segir Davíð Rúnar um Ronald. „Það skiptir engu máli hvað þú setur honum fyrir eða ætlast til af honum, Ronald bara fylgir því.“ Davíð Rúnar er þjálfari RonaldsVísir/Anton Brink Studdur með ráð og dáð Hugur og hjarta stráksins er í hnefaleikunum og þar fær hann að blómstra með stuðningi fjölskyldu sinnar. Faðir Ronalds býr í Kanada og hafa bæði Ronald og Davíð Rúnar orð á því af fyrra bragði hversu gott það hefur gert honum að faðirinn sýni hans framgöngu í sportinu skilning og áhuga. „Pabbi er voða mikið að hjálpa mér við að fá alla reynslu sem ég þarf. Ástæðan fyrir því að ég er kominn þetta langt þrátt fyrir að vera æfa í stuttan tíma er sú að ég hef fengið að æfa og keppa erlendis, pabbi tekur mig út um allan heim að æfa og keppa og þar er mjög stór partur af þessu.“ Vísir/Anton Brink Því það getur reynst erfitt að finna bæði æfingafélaga sem og andstæðinga hér heima, vandamál sem er ekki einungis bundið við litla Ísland. „Það sem hefur verið að aftra honum, þar sem hann er það léttur og er í 50 kílóa flokki, er að það er ekki mikið af keppendum að hafa yfir höfuð,“ segir Davíð. „Hann er heppinn með allan þann stuðning sem hann fær að heiman og getur því ferðast út um allt og elt þessa flokka þangað. Það er það sem er að koma honum lengra, stig fyrir stig. Ef hann væri ekki að fá þennan stuðning þá væri hann rosalega einangraður með enga andstæðinga. Við eigum rosa mikið af góðum keppendum hér heima á Íslandi en þegar að við tölum um efnilega hnefaleikakappa þá er hann þar númer eitt.“ Úlfur í sauðargæru Núna í upphafi árs, eins og komið var inn á í upphafi greinarinnar kom Ronald, sá og sigraði á Algarve Cup mótinu þar sem að hann lagði margfaldan írskan meistara, með fjórfalt fleiri bardaga á bakinu, örugglega. Ronald vissi ekkert um andstæðinginn fyrir bardagann og spáir yfir höfuð ekkert í reynslu og stærð andstæðinga sinna. „Þetta er bara annar gæi ef maður pælir í því. Þetta skiptir engu máli, Davíð segir við mig að þetta að þetta sé bara annar gæi með tvær hendur eins og þú.“ Á efsta þrepi verðlaunapallsins með gull um hálsinn eftir sigur á sterku móti á Algarve. Þegar Davíð er beðinn um að lýsa Ronald sem boxara vitnar hann í góðan þjálfara og vin sinn sem sagði að það væri gaman að horfa á boxara sem líta ekkert út fyrir að vera boxarar. „Svona úlfur í sauðargæru og hann er eiginlega besta dæmið um það. Hlédrægur gæi sem segir ekki neitt. Fylgir bara fyrirmælum, alltaf, og mótmælir aldrei. Svo þegar að bjallan hringir og bardaginn hefst breytist hann í skrímsli. Hann hefur stigeflst jafnt og þétt, svo tekur hann þessi stökk í framförum. Það hefur auðvitað komið fyrir að eitthvað hefur ekki gengið nógu vel en það er aldrei eitthvað sem er þess valdandi að hann missi hausinn, auðvitað verður maður fúll í smá tíma en svo er bara farið að pæla í því hvað við þurfum að gera til að bæta okkur og hvernig við gerum það. Bara áfram gakk. Vísir/Anton Brink Ronald er örvhentur, sem er rosa góður kostur fyrir þá sem geta boxað vel þannig. Hann boxar mjög dansandi og stimplar sig út (e. Checkes out). Hann er mikið í því að sveifla mönnum til hliðar þegar hann kýlir og fer síðan á þá fá öðru sjónarhorni. Það virkar mjög vel, sérstaklega ef þú ert örvhentur og gerir það vel. Það er svolítið einkennandi fyrir hann. Þá er hann jafnvel oft með hendurnar niðri til þess að búa til opnun. Hann er kominn á það stig að geta það og það getur verið mjög hættulegt vopn.“ Með báða fætur á jörðinni Í gegnum sinn stutta feril til þessa hefur Ronald upplifað stóra sigra en einnig töp. Hann talar hins vegar ekki um töp, heldur reynslu. Frá öllu dregur hann lærdóm sem hann nýtir sér í framhaldinu. „Á Norðurlandamótinu í eitt skiptið tapaði ég bardaga en var þá að keppa við einn besta boxara í heimi í þyngdarflokknum mínum. Eftir tapið fékk ég samt ótrúlega mikið sjálfstraust, vitandi það að ég hafi staðið í honum. Það var geggjuð reynsla og mér fannst ég taka skref fram á við eftir það.“ Vísir/Anton Brink Ronald er kominn langt þrátt fyrir að eiga aðeins þrjú ár undir beltinu en vill hann gera úr þessu feril? „Já hundrað prósent en ég horfi ekkert svo langt fram í tímann. Ég hugsa bara út í árið sem er framundan, næsta móti. Ég ætla bara að vinna næsta mót og pæla í hinu seinna. Næsta mót er það eina sem skiptir máli núna.“ Og það styttist í næsta mót. Ronald heldur út til Las Vegas á næstu dögum þar sem að hann mun æfa í stóru gymmi áður en leið hans liggur til Kanada þar sem honum bauðst að æfa með hluta af kanadíska landsliðinu sem er að undirbúa sig fyrir mót sem er á sama tíma og næsta mót Ronalds, Norðurlandamótið. Getur farið alla leið Davíð segir Ronald hafa allt til brunns að bera til þess að ná langt í íþróttinni. „Það er engin pressa, ég hef ekki neinar einustu áhyggjur. Ekki neinar. Púlsinn minn er fjörutíu þegar að ég segi þetta. Hann getur farið alla leið, hann þarf bara að taka réttu skrefin og ég ætla gera allt sem ég get til þess að fara með hann þangað og alla hina sem eru til í að leggja á sig vinnuna eins og hann er að gera. Ronald og Davíð mynda gott teymiVísir/Anton Brink Það er enginn að tala um atvinnumennsku núna. Hann er átján ára. Ég er bara að hugsa um að komast alla leið í áhugamannahnefaleikum. Það hefur enginn Íslendingur komist á Ólympíuleikana í hnefaleikum, aldrei. Það er hægt. Við höfum aldrei náð verðlaunum eða marktækum árangri á EM eða HM. Það er líka hægt. Áhuginn, aginn og viljinn er til staðar hjá Ronald Bjarka. „Átján ára gaur sem er fimmtíu kíló, vinnur á Dominos og borðar ekki pizzu því hann ætlar að vera góður í hnefaleikum. Það segir ógeðslega mikið.“
Box Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira