Silfurhafi um viðbrögð Trumps: „Ekki gaman að vera hluti af þessu“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 11:03 Ben Ogden fagnar silfurverðlaunum sínum á Vetrarólympíuleikunum í gær. Getty/Andrzej Iwanczuk Bandaríski silfurverðlaunahafinn Ben Ogden í skíðagönguspretti karla á Vetrarólympíuleikunum í gær segir að það sé erfitt að fylgjast með því sem gerist í heimalandinu.
Ogden, sem aðeins var sigraður af hinum magnaða Johannes Høsflot Klæbo, er líkt og liðsfélagar sínir í bandaríska skíðalandsliðinu á ferðalagi allt tímabilið en honum líkar ekki það sem hann sér frá heimalandinu undir forystu Donalds Trumps forseta. Innan bandaríska ólympíuhópsins náði ástandið hámarki fyrr í vikunni. Skíðafimimaðurinn Hunter Hess er, líkt og alpagreinastjarnan Mikaela Shiffrin, meðal þeirra sem hafa tjáð sig opinberlega um áhyggjur sínar af því að keppa fyrir hönd Bandaríkjanna undir stjórn Trumps. Hess hefur sagt að það að keppa fyrir hönd Bandaríkjanna við núverandi aðstæður sé „orðið erfitt“. Það kallaði á hörð viðbrögð frá Trump, sem notaði Truth Social-reikning sinn til að lýsa Hess sem „algerum lúser“. Á þriðjudag var Ogden spurður hvað honum fyndist um viðbrögð Trumps og það pólitíska andrúmsloft sem ríkir í heimalandi hans. „Ég hef ekki verið heima í Bandaríkjunum í langan tíma en það er virkilega erfitt að fylgjast með því sem er að gerast úr fjarlægð. Ég vil gjarnan trúa því að ég komi frá þjóð þar sem þú getur sagt það sem þú vilt án þess að forsetinn elti þig. En augljóslega ekki,“ sagði Ben Ogden. „Mér fannst það sem Hunter sagði vera alveg í lagi. Það var ekki eldfimt og skapaði engin stór vandamál. En, þú veist, þetta er ekkert sem er gaman að vera hluti af,“ sagði Ogden. Ogden fór heiðurshring með bandaríska fánann eftir að silfrið var tryggt og segir að hann fái innblástur frá heimalandi sínu þrátt fyrir allt. Hann stóð líka við loforð við sjálfan sig. „Ég lofaði fimmtán ára sjálfum mér að ef ég ynni til verðlauna á Ólympíuleikum myndi ég taka heljarstökk aftur á bak af verðlaunapallinum,“ sagði Ogden. Ogden varð fyrsti bandaríski karlmaðurinn til að vinna til verðlauna í skíðagöngu á Ólympíuleikum síðan Bill Koch gerði það árið 1976. “I promised my 15-year-old-self that if I won an Olympic medal, I’d do a back flip off the podium.”Ben Ogden is SECOND in the world, becoming the first American man to win an Olympic medal since Bill Koch in 1976!! 🇺🇸📣 pic.twitter.com/UIwW7oez4g— U.S. Ski & Snowboard Team (@usskiteam) February 10, 2026
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira