Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. febrúar 2026 07:08 Melinda French Gates segist vonast til þess að réttlætið nái fram að ganga. Getty/Corbis/Christian Liewig „Persónulega, þá er það erfitt fyrir mig þegar þessi smáatriði koma í ljós, skilurðu? Því þá vakna minningar um afar erfiða tíma í hjónabandinu mínu,“ sagði Melinda French Gates, fyrrverandi eiginkona Bill Gates, þegar hún var spurð út í tölvupósta sem hafa vakið athygli í Epstein-skjölunum.
Um er að ræða pósta sem virðast hafa verið samdir af Epstein og hann sendir sjálfum sér. Þeir eru settir upp eins og bréf til Gates, þar sem Epstein segir Gates meðal annars hafa leitað til sín til að komast í samband við stúlkur og biðlað til sín um að útvega honum sýklalyf vegna kynsjúkdóms sem Gates ku hafa fengið eftir að hafa stundað kynlíf með „rússneskum stúlkum“. Þá gerir Epstein því skóna að Gates hafi ætlað að reyna að gefa Melindu sýklalyfið án þess að hún yrði þess vör. Talsmaður Gates hefur neitað ásökununum. Melinda var spurð út í tölvupóstana í viðtali við hlaðvarp á vegum NPR og sagðist virkilega finna til með stúlkunum sem hefðu orðið á vegi Epstein. Sagðist hún hafa fengið tækifæri til að halda áfram með líf sitt eftir skilnaðinn og vonast til að stúlkurnar, sem nú væru orðnar konur, fengju réttlætinu fullnægt. „Hvaða spurningar sem enn eru uppi varðandi... ég get ekki ímyndað mér það allt... þær spurningar eru fyrir þetta fólk, og jafnvel fyrrverandi eiginmann minn, að svara. Þau þurfa að svara fyrir þetta, ekki ég.“
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira