Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. janúar 2026 11:22 „Ísland var að jafna metin en eru manni færri næstu fimmtíu sekúndurnar,“ gæti einhver þingmaðurinn hvíslað að forseta þingsins í dag til að upplýsa um stöðu mála í leiknum gegn Sviss í Malmö. Vísir/Vilhelm Reikna má með því að framlegð á vinnustöðum landsins muni lækka verulega á þriðja tímanum í dag þegar flautað verður til leiks í viðureign Íslands og Sviss í milliriðli 2 á Evrópumótinu í handbolta.
Ísland getur stigið stórt skref í átt að undanúrslitum með sigri á Sviss. Andstæðingur situr á botni riðilsins en er sannarlega sýnd veiði og alls ekki gefin. Sviss hefur gefið öllum andstæðingum sínum leik og full ástæða til að hafa varann á. Slegið verður í bjöllu Alþingis klukkan 13:30 í dag þegar þingfundur hefst. Fréttastofu lék forvitni á að vita hvernig þingstörfum yrði háttað klukkustund síðar þegar flautað verður til leiks í Malmö. Víst er að í þingliðinu eru fjölmargir áhugamenn um gengi íslenska landsliðsins. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, varð fyrir svörum og var svar hennar skýrt: „Ég mun ekki gera tillögu um að fundum sé frestað vegna leikjanna,“ segir Þórunn og vísar til fyrirspurnar blaðamanns þar sem bent var á að Ísland mætir Slóveníu á morgun klukkan 14:30 en þingfundur er á dagskrá klukkan 15. Líkt og landsleikurinn verður Alþingi í beinni útsendingu á Alþingisrásinni og verður fróðlegt að sjá hvort ekki verði einn eða tveir símar á borðum þar sem fylgst verður með gangi okkar manna. Hér má fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum á Vísi en upphitun er þegar hafin.
Alþingi EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira