„Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Árni Sæberg skrifar 27. janúar 2026 11:26 Kristrún Frostadóttir er ánægð með prófkjör flokks hennar um helgina. Vísir/Vilhelm Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, gefur ekkert upp um það hvernig hún greiddi atkvæði í nýafstöðnu prófkjöri flokksins í Reykjavík. Hún segir þátttökuna í prófkjörinu vera glæsilega fyrir flokkinn en ríflega fimm þúsund flokksfélagar tóku þátt í því, margir hverjir spánnýir í flokknum. Þá vill Kristrún ekki tjá sig sérstaklega um orð borgarstjóra um að flokksfélagar hafi hafnað reyndri konu.
Pétur Marteinsson var kjörinn oddviti Samfylkingar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í vor í fjölmennu prófkjöri um helgina. Hann hlaut mikinn meirihluta atkvæða í baráttu við Heiðu Björgu Hilmisdóttir, núverandi oddvita og borgarstjóra. Smári Jökull Jónsson fréttamaður ræddi prófkjörið við Kristrúnu að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Hefur ekkert sérstakt um ummælin að segja Þessi ummæli Heiðu, um að Samfylkingin sé ekki tilbúin fyrir konu í leiðtogastöðu, hvað finnst þér um þau? „Fyrst vil ég segja að við erum að koma út úr fimm þúsund manna prófkjöri í Samfylkingunni. Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn og það skilaði sér auðvitað sú niðurstaða að sá oddviti sem var kjörinn er með gríðarlega sterkt umboð. Ég skil auðvitað að því fylgi vonbrigði að fólk fái ekki það sæti sem það sækist eftir. Heiða hefur staðið sig vel sem borgarstjóri. Hún var formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún hefur verið í öðru sæti frá því 2018 og það er gott sæti að vera í á lista hjá Samfylkingunni. Þannig að það er mjög eðlilegt að það séu vonbrigði sem fylgi því. En í lok dags er þetta bara gríðarlega öflug niðurstaða fyrir flokkinn,“ segir Kristrún. Hún hafi ekkert sérstakt um ummæli Heiðu Bjargar að segja. Henni hafi verið treyst af flokknum en fyrir prófkjörið hafi komið fram skýrt ákall um breytingar hjá Samfylkingunni í borginni. Pétur sé búinn að fá mjög sterkt umboð til þess að leiða slíkar breytingar núna í vor. Samfylkingin farið ört stækkandi Þá segir Kristrún að það hafi sýnt sig í prófkjörinu um helgina að það er búið að virkja gríðarlegan hóp af fólki. „Samfylkingin hefur auðvitað farið ört stækkandi núna á undanförnum árum og misserum og við sjáum þarna að það er mikill vilji til þess að taka þátt í þessu prófkjöri. Þannig að ég meina, stefnan verður áfram sú sama en það er vilji til þess að fá inn nýtt fólk í sum sæti til þess að knýja fram þessar breytingar. Við eigum að hlusta á grasrótina, við eigum að hlusta á fólkið sem skráir sig í flokkinn, sem er skráð í flokkinn og vill virkja lýðræðið og þetta er mjög sterkt umboð sem Pétur er að fá.
Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Veitir ekki viðtöl að sinni Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun ekki veita viðtöl um úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar í dag. Enn er óvíst hvort hún þiggi annað sætið á lista flokksins í vor. 26. janúar 2026 17:49 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira
Veitir ekki viðtöl að sinni Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun ekki veita viðtöl um úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar í dag. Enn er óvíst hvort hún þiggi annað sætið á lista flokksins í vor. 26. janúar 2026 17:49