Hiti geti mest náð átján stigum Eiður Þór Árnason skrifar 22. desember 2025 22:13 Haraldur Ólafsson veðurfræðingur biður ökumenn um að halda vel í stýrið þar sem vindur verður mikill. Vísir Veðurviðvaranir munu einkenna jólahátíðina í flestum landshlutum og munu þær fyrstu taka gildi eftir hádegi á morgun á Breiðafirði og Vestfjörðum. Í kjölfarið dreifast þær yfir landið og ná hámæli á aðfangadag. Hiti getur hæst náð átján stigum, að sögn Veðurstofunnar.
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að mikil rigning muni fylgja þessu veðri á öllu sunnan – og vestanverðu landinu frá því síðdegis á Þorláksmessu og fram á aðfaranótt annars í jólum. Því megi búast við einhverjum vatnavöxtum og mælst til þess að fólk hugi að niðurföllum. Einnig verður bálhvasst, að sögn Haraldar, og snarpar vindhviður þar sem sunnanáttin stendur á fjöllum fyrir norðan og á stöðum eins og norðanverðu Snæfellsnesi og sums staðar í Borgarfirðinum. Veðrið geti haft áhrif á samgöngur en það verði allavega ekki hálka sem trufli umferð að þessu sinni. „Það er svo óskaplega hlýtt í þessu, það er óvenjuhlýtt. Þetta er næstum því eins og í september en fyrst það er ekki hálka þá ættu menn nú að komast leiðar sinnar. En það er full ástæða til að fara samt gætilega, aka ekki of hratt og halda fast í stýrið,“ sagði Haraldur í kvöldfréttum Sýnar. Hann mælir með að fólk passi einnig upp á að engir lausamunir verði úti við og að frárennslisvatn komist leiðar sinnar til að draga úr fjölda útkalla björgunarsveita á aðfangadag. „Það er nú aðallega það kannski og taka vel á móti Kertasníki því hann verður blautur.“ Vara við mögulegum skemmdum á mannvirkjum Veðurstofa Íslands greinir frá því að hvassasta veðrið sé væntanlegt fyrripart aðfangadags þegar stormur eða rok getur gengið yfir Vestfirði og Norðurland. Appelsínugular viðvaranir hafi verið gefnar út vegna þessa en hviður á þessu svæði geta farið yfir fjörutíu metra á sekúndu. Veðrið á að standa áfram yfir aðfangadag og verður enn nokkuð hvasst á jóladag. Staðan klukkan tíu á aðfangadag.Veðurstofa Íslands „Við slíkan vindstyrk er ekki aðeins hætta á að lausir munir fjúki heldur geta einnig orðið skemmdir á mannvirkjum, til dæmis að þakplötur losni. Hlýr loftmassi getur jafnframt leitt til óvenju mikils hita og ekki er útilokað að desemberhitamet verði slegið um jólin því hnjúkaþeyrinn getur verið brellinn og brögðóttur,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. Það kæmi því ekki á óvart ef sautján til átján stig sæjust á veðurmælistöð á Norður- eða Austurlandi, til dæmis á aðfangadagskvöld eða að morgni jóladags. Hæsti hiti sem mælst hefur í desember á Íslandi er 19,7 stig og mældist á Kvískerjum 2. desember 2019.
Veður Jól Mest lesið Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Innlent Einum úr áhöfninni bjargað Erlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Þungbúið fyrir norðaustan en heiðskírt víða annars staðar Gular viðvaranir taka gildi í enn eitt skiptið Gular viðvaranir vegna storms í kvöld og á morgun Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lægð með snjókomu fer hratt yfir landið Snýst í austan og suðaustan í kvöld með snjókomu og slyddu Slydduél og snjókoma í kortunum Gular veðurviðvaranir í kortunum Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu á morgun Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Skólahaldi ekki aflýst en raskanir boðaðar Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Appelsínugular viðvaranir og yfir 45 metrar á sekúndu á Kjalarnesi Köldu lofti beint til landsins og djúp lægð nálgast Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Breiðholtsbraut lokað vegna umferðaróhapps Leiðindaveður um land allt, gular viðvaranir og óvissustig Gular viðvaranir aftur á kreik Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Skammt stórra högga á milli Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Svæði rýmt á Ísafirði og beðið eftir illviðri Hvassviðri og talsverð rigning Holtavörðuheiði lokað á miðnætti og tvísýnt um Öxnadalsheiði Víða hægir vindar en hvessir í kvöld Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Holtavörðuheiðin opin á ný Sjá meira