Þetta eru fjölmennustu borgir í heimi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 26. nóvember 2025 08:40 Fólk á ferðinni á háannatíma í Jakarta í Indónesíu. Getty/Firdaus Wajidi Árið 1950 bjuggu aðeins um 20% heimsbyggðarinnar í borgum. Undanfarna áratugi hefur þéttbýlisvæðing farið vaxandi á heimsvísu og er hlutfalli þeirra sem nú búa í borgum komið upp í 45% samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Á sama tíma hefur fjöldi jarðarbúa margfaldast, úr um 2,5 milljörðum árið 1950 upp í um 8,2 milljarða í ár samkvæmt skýrslunni.
Borgir eru skilgreindar sem svæði þar sem íbúar eru 50 þúsund eða fleiri og um 1500 íbúar á hvern ferkílómetra. Á móti hefur hlutfall mannfjölda sem býr í bæjum með að minnsta kosti fimm þúsund íbúa farið ögn lækkandi, úr 40% og niður í 36% á sama 75 ára tímabili. Hlutfall þeirra sem búa í dreifbýli hefur einnig dregist saman en áætlað er að aðeins 19% heimsbyggðarinnar búi í dreifbýli, sem er helmingi minna en var 1950. Borgir stækka og ofurborgum fjölgar Fram kemur í niðurstöðum skýrslunnar að þéttbýlisvæðingin sé einhver stærsta lýðfræðilega breytingin sem hefur átt sér stað í mannkynssögunni, en með henni hefur gjörbreyst hvernig fólk býr, starfar og byggir upp samfélög um allan heim. Fjölbreyttir ferðamátar íbúa í Jakarta í Indónesíu sem er fjölmennasta borg í heimi árið 2025.Getty/ Afriadi Hikmal Athygli vekur að svokölluðum ofurborgum, sem hafa tíu milljónir íbúa eða fleiri, heldur áfram að fjölga. Árið 1975 voru slíkar borgir einungis átta, en í ár eru þær orðnar 33 og þar af eru 19 í Asíu. Spár gera ráð fyrir að þeim muni áfram fjölga og verði orðnar 37 árið 2050. Aðeins ein fjölmennustu borganna ekki í Asíu Fjölmennasta borgin er Jakarta, höfuðborg Indónesíu, þar sem búa nær 42 milljónir. Næstfjölmennust er Daka í Bangladess þar sem búa 37 milljónir og þá Tókýó í Japan með 33 milljónir íbúa. Kaíró í Egyptalandi er eina borgin sem kemst á topp tíu listann sem ekki er í Asíu, en á listanum eru einnig Nýja-Delí og Kalkútta í Indlandi, Shanghæ og Guangsú í Kína, Manila á Filippseyjum, og Seúl í Suður-Kóreu. Í skýrslunni er að finna ýmsar athyglisverðar upplýsingar um mannfjölda og þéttbýlisvæðingu á heimsvísu en hana má finna í heild sinni hér.
Mannfjöldi Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira