Sænskur og sjóðheitur undir áhrifum BDSM Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 20. október 2025 10:02 Sjóðheiti sænski folinn Alexander Skarsgard stal senunni á BFI London Film Festival í gær. Gareth Cattermole/Getty Images „Mig langaði að vera kynþokkafullur,“ segir sænski folinn og leikarinn Alexander Skarsgård sem kom, sá og sigraði rauða dregilinn á kvikmyndahátíð í London í gær.
Þessi stjarna fer með hlutverk í kvikmyndinni Pillion sem er væntanleg í kvikmyndahús í lok nóvember. Harry Melling leikur á móti honum samkynhneigðan lokaðann mann en Skarsgård leikur mótorhjólakappa. Eftir kynni kappanna hefst ástarsamband sem einkennist af BDSM. Skarsgård hefur notið þess að klæða sig upp í tengslum við hlutverk sitt og er stöðugt að kynna myndina. Leður, leggir, dildóskyrta og fleira hefur einkennt klæðaburðinn og má segja að hann hafi toppað sig í flottheitum í gærkvöldi. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Stílistinn Harry Lambert sá um að setja klæðnaðinn saman en Skarsgård rokkaði franska tískumerkið Ludovic de Saint Sernin frá toppi til táar; hvíta skyrtu sem er alveg opin í bakið með krúttlegum kraga, mjótt leðurbelti, níðþröngar reimaðar leðurbuxur og gróf leðurstígvél frá skókónginum Jimmy Choo.
Tíska og hönnun Hollywood Bretland Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira