Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar 21. ágúst 2025 14:00 Elsku mamma mín lést úr heilabilun núna í maí. Það er erfitt að setja í orð hvernig sú vegferð hefur verið – ekki bara út af sjúkdómnum sjálfum, heldur líka vegna þess að heilbrigðiskerfið sem átti að styðja hana og okkur fjölskylduna brást á svo mörgum stigum. Stuttu eftir að formleg greining var komin sagði mamma: „Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein. Þá færi af stað eitthvað ferli, þá kæmi teymi sem myndi útskýra framhaldið, styðja okkur og leiðbeina. En hér tekur ekkert við – maður er bara skilinn eftir einn.“ Þessi setning nístir enn hjartað mitt. Hún sýnir svo vel hversu einmana mamma upplifði sig og hversu miklar áhyggjur hún hafði af okkur, fólkinu sínu. Það segir margt um hve mikið vantar í utanumhald, fræðslu og stuðning frá heilbrigðiskerfinu þegar fólk greinist með heilabilun – svo mikið að fólk óski sér jafnvel frekar að hafa fengið annan lífshættulegan sjúkdóm eins og krabbamein. Fyrstu einkenni og greiningarferlið Árið 2021 fór mamma að finna fyrir breytingum. Hún kvartaði yfir því að vera „ekki alveg hún sjálf“, tímaskynjunin brenglaðist, hún fann ekki hluti og jafnvel stórkostlegu pönnukökurnar hennar fóru að misheppnast. Handavinnan, sem áður var svo stór hluti af lífi hennar, varð erfiðari og tók lengri tíma. Við fjölskyldan tókum líka eftir þessu. Um haustið fékk hún tíma hjá heimilislækni sem gerði minnispróf og í framhaldinu sendi beiðni um segulómun á höfði. Okkur fannst hann gera lítið úr ástandinu þar sem hann sagði henni að koma aftur eftir sex til átta mánuði. Enginn sérfræðingur, engar leiðbeiningar, bara niðurstaða um smáblæðingar í heila birtust sem skilaboð á Heilsuveru – og svo ekkert meira. Þegar hún kom aftur til heimilislæknisins þessum mánuðum seinna, höfðu einkennin versnað mikið. Við kröfðumst þess að fá nánari skoðun og fengum loks tilvísun til öldrunarlæknis. Það tók tíma að fá viðtal, og þegar að því kom, var það bæði stutt og samhugurinn lítill. Hún var þó send í taugasálfræðipróf á Minnisdeild, og það var í fyrsta sinn sem okkur fannst læknir hlusta og taka málið alvarlega. Við fengum símafund, niðurstöðurnar voru útskýrðar og okkur sagt að allt benti til heilabilunar. En til að fá formlega greiningu þurfti hún aftur að hitta öldrunarlækninn. Hann hafði ekki einu sinni kynnt sér niðurstöður taugasálfræðimatsins fyrir fundinn – las þær í tölvunni, með mömmu og pabba sitjandi á móti sér, og tilkynnti þeim eins og hann væri að bjóða þeim upp á kaffi: „Já, þetta er heilabilun vegna æðasjúkdóms.“ Ekkert meira. Engin útskýring, engar sérstakar leiðbeiningar, engin fræðsla um næstu skref. Mamma og pabbi gengu út í sjokki. Og það eina sem eftir sat var að hún ætti að mæta aftur eftir einhverja mánuði eða ár. Tómarúmið eftir greininguna Eftir eitt og hálft ár frá fyrstu læknisheimsókninni stóðum við uppi með alvarlega greiningu hjá mömmu – en engar leiðbeiningar. Hvert átti mamma að leita til? Hvað tæki svo við? Hvernig átti mamma að lifa með sjúkdómnum? Hún var ekkert gömul og í góðu líkamlegu formi. Voru einhver lyf sem gætu gagnast? Virkuðu kannski einhver Alzheimer-lyf á hana? Við gerðum það sem flestir gera – fórum að gúggla, hver í sínu horni, oft með misvísandi og hræðilegum lýsingum á því sem koma skyldi. Alzheimersamtökin Ég hafði heyrt af Alzheimersamtökunum, en hélt að þau væru aðeins fyrir fólk með Alzheimer og það væri ekki fyrir mömmu því hún var með heilabilun af öðrum toga. Eftir nánari eftirgrennslan kom í ljós að samtökin eru fyrir alla sem greinast með heilabilun, óháð tegund. Þvílíkur léttir! Þetta var fyrsta skrefið í átt að einhverjum raunverulegum stuðningi – en hann kom ekki frá heilbrigðiskerfinu heldur frá samtökum sem reka starfsemi sína að mestu með félagsgjöldum, styrkjum, minningargjöfum og áheitum úr Reykjavíkurmarþoninu. Þar tóku á móti okkur hlýir og reynslumiklir starfsmenn. Mamma og pabbi fóru á upplýsingafund fyrir nýgreinda, við í fjölskyldunni fengum ráðgjöf, mættum á stuðningsfundi og fengum sálfræðiþjónustu. Við vissum að við gætum alltaf leitað ráða þarna, hvort sem það snerist um dagþjálfun, hvíldarinnlögn, hjúkrunarheimili eða bara almennar pælingar. Þar sem allt greiningarferlið hafði einkennst af seinagangi og áhugaleysi heilbrigðiskerfisins, veltir maður óneitanlega fyrir sér: Ef mamma hefði fengið greiningu og stuðning fyrr, hefði þá verið hægt að gera meira fyrir hana? Lengja lífsgæðin? En slíkar hugsanir gera manni ekki gott. Það sem skipti máli var að finna að við vorum ekki ein í þessari hraðlest sem sjúkdómurinn var. Og hraðlest var hann svo sannarlega: mamma fær formlega greiningu í maí 2023, fer inn á hjúkrunarheimili í ágúst 2024 og deyr svo í maí 2025. Eftir stöndum við fjölskyldan, tætt, þreytt og í djúpri sorg. Hvað þarf að breytast? Google á ekki að vera helsti ráðgjafi fólks sem greinist með heilabilun og aðstandenda þeirra. Það þarf að vera til staðar skýrt ferli, utanumhald og eftirfylgni. Stuðningur á að vera boðinn strax við greiningu, með teymi lækna, hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa. Og samtök eins og Alzheimersamtökin eiga að fá opinbert fjármagn og vera hluti af kerfinu sjálfu. Annars verða sjúklingar og fjölskyldur þeirra skilin eftir í tómarúmi – með kuldaleg greiningarorð læknis bergmálandi í höfðinu en engar leiðbeiningar um hvað ætti að gera í framhaldinu. Áskorun til þín Á laugardaginn nk., 23. ágúst, fer fram hið árlega Reykjavíkurmaraþon. Þar munu margir hlauparar hlaupa til styrktar Alzheimersamtökunum – samtökunum sem veittu okkur þann stuðning sem heilbrigðiskerfið gerði ekki. Þeir hlaupa undir slagorðinu Munum leiðina sem lýsir svo vel því að það er í okkar höndum að muna leiðina fyrir þá sem gleyma. Ég vil hvetja alla til að styrkja þessa hlaupara og þar með þetta ómetanlega starf. Það má gera hér: 👉 https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/372-alzheimersamtokin Höfundur er markaðssérfræðingur og sérleg áhugamanneskja um betrumbætta þjónustu fyrir heilabilaða og aðstandendur þeirra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Heilbrigðismál Mest lesið Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson Skoðun Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson skrifar Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun
Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun