Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir skrifar 26. júlí 2025 07:32 Öskraði hann og ýtti mér fast upp við vegg á skemmtistað niðri í miðbæ Reykjavíkur. Alíslenskur fyrrum bekkjarbróðir minn í grunnskóla. Þarna vorum við um tvítugt. Ég leit á hann, sem betur fer ekki lengur hrædd við hann og sá að hann var sannfærður um það að ég hefði eyðilagt líf hans og gjörsamlega sturlaður vegna þess að ég „gat bara ekki haldið kjafti.“ Ekki eini gerandinn sem hefur haldið því fram að þolandi eyðileggi líf sitt með því að segja frá. Einnig efast samfélagið enn of mikið um frásagnir þolenda og vorkennir gerendum allt of mikið. Þess vegna langar mig að deila eigin reynslu. Ég þagði ekki þá og ég þegi ekki í dag. Brotið átti sér stað fyrir um 25 árum síðan, sumarið fyrir síðasta árið okkar í grunnskóla en við höfðum verið saman í bekk síðan við vorum átta ára. Mér þótti vænt um hann, hafði þekkt hann lengi, taldi mig því geta treyst honum og svo auðvitað var ég líka hrikalega skotin í honum. Hins vegar komst ég að því nokkrum mánuðum eftir okkar kvöld saman, um miðjan 10. bekk, að trúnaðarbresturinn var vondur. Hann hafði skipulagt kvöldið fyrir fram með vinum sínum og komið fyrir upptökumyndavél inni í herberginu sem við hittumst í. Hann tók okkur upp stunda kynlíf, án minnar vitundar, og sýndi svo öðrum strákum. Þegar þessar upplýsingar komust til mín í gegnum vinkonur skildi ég loksins hvers vegna sumir strákar höfðu látið virkilega óviðeigandi við mig það sem af var skólaárinu, stelpur starað á mig með viðurstyggð og margir krakkar hætt að yrða á mig. Veröldin mín hrundi. Vægast sagt. Skömmin bugaði mig nánast og viðbrögð annarra ungmenna létu ekki heldur á sér standa. Framvindan var öll mjög yfirþyrmandi en ég komst að því að fullt af krökkum vissi þetta á undan mér og allir höfðu skoðun. Einnig hafði þetta spurst út á milli hverfa og var umtalað í mörg ár á eftir. Í þeirri umræðu hallaði oftar en ekki á mig. Ég var kölluð hóra og heimsk fyrir að hafa látið plata mig svona. Ég gæti sjálfri mér um kennt fyrir að hafa verið að drekka, trúað honum, yfirhöfuð farið til hans og allskonar fólk sannfærði sig um að ég hlyti bara auðvitað að vera ómerkileg drusla. Viðlíka orðræðu höfum við nú séð opinberaða og hún fengið formlegar skilgreiningar eins og drusluskömm og gerendameðvirkni. Þolendur hafa, með því að berskjalda sig og þegja ekki, frætt fólk um sína hlið og gert kýrskýrt að skömmin og ábyrgðin liggi alfarið hjá gerendum. Sjálf skilaði ég endanlega skömminni til gerandans nokkrum árum eftir atvikið sem ég lýsi hér að ofan og hann tók henni. Hann viðurkenndi sitt brot, bað mig afsökunar og tók fulla ábyrgð á öllum sínum gjörðum fyrir framan annað fólk. Það hjálpaði mér mikið, sér í lagi gagnvart trúnaðarbrestinum og svikum hans við mig. Það sem situr hins vegar enn eftir í mér og ég geri nú tilraun til að græða hjá sjálfri mér með því að opna á umræðu um er allt það félagslega sem átti sér stað eftir brotið sjálft.Það sem ég meina með því er framkoma annarra í minn garð eftir brotið. Sumir tóku virkan þátt í að gera lítið úr mér, eins og til dæmis skólabróðir minn og jafnaldri sem fann sig knúinn til að segja mér að ég væri með geggjuð brjóst fyrir framan fullt af fólki því hann hefði séð þau í myndbandinu. Einn dag í 10. bekk fann ég líka miða í skápnum mínum. Á hann var búið að teikna myndbandsupptökuvél og skrifa eitt orð. Hóra. Svo voru það sögusagnirnar sem fólk virtist elska að japla á. Dreifa, dæma og drulla. Á milli hverfa, framhaldsskóla og vinahópa. Ég barðist með kjafti og klóm þegar svoleiðis kom upp, opnaði mig og sagði frá hvernig hlutirnir hefðu farið fram í raun og veru. Ég reif einnig oft stólpakjaft, var almennt með stæla, ögraði og þóttist stundum vera aðeins meiri töffari en ég í raun var. Það var líka oft gaman en ég djammaði kannski heldur mikið miðað við ungan aldur. Ég kynntist líka allskonar góðu fólki því ég gat ekki verið kyrr með eigin tilfinningum og það var stuðningur frá vinum og vinkonum sem trúðu mér og efuðust aldrei sem hjálpaði mest. Þið vitið hver þið eruð. Takk. Rannsóknir sem gerðar hafa verið hérlendis og erlendis sýna að neikvæð viðbrögð fólks við því þegar þolendur segja frá kynferðisofbeldi auka líkur á sálfræðilegum röskunum eins og þunglyndi eða áfallastreitu ásamt því að ýta undir slæm bjargráð eins og vímuefnaneyslu eða áhættuhegðun. Þannig að þegar við erum of fljót að dæma án þess að hafa forsendur til, dreifum sögum án þess að leggja neina gagnrýna hugsun í þær og drullum með því að drusluskamma þá verður allt mikið verra fyrir þolendur. Ég hef trú á að við getum gert betur! Til dæmis með því að leyfa þolendum sem stíga fram að njóta vafans fram yfir meinta gerendur, dæma minna, dreifa minna og drulla minna. Ein rannsóknanna fyrrnefndra gefur dæmi um jákvæð og styðjandi viðbrögð þegar rætt er um kynferðisofbeldi eða ef einhver leitar til þín eftir að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Þá er best að: • veita öruggt umhverfi • hlusta og gefa þolanda tækifæri til að tala • sýna að þér er ekki sama og að þú trúir þolanda • stjórna þínum eigin viðbrögðum og tilfinningum eins og hægt er • fara varlega í að koma með ráðleggingar • hafa samráð við þolanda um öll möguleg næstu skref Nánar er hægt að fræðast um rannsóknirnar með því að horfa á málþing sem sálfræðideild HR hélt á síðasta ári og má finna hér: (www.ru.is/vidburdir/kynferdisofbeldi-og-onnur-afoll-a-islandi). Eftirmálar þess félagslega sem átti sér stað eftir brotið sjálft fyrir 25 árum hefur meiri neikvæð áhrif á mig í dag en brotið sjálft. Það hefur reynst mér erfiðara að eiga við afleiðingar viðbragða fólks. Sögusagnirnar, útskúfunina, dómana og ýmislegt annað rugl sem fylgdi. Mín von er nú að það losni nú eitthvað um þessa skömm með því að deila broti af eigin reynslu og þannig leggja mitt á vogarskálarnar í baráttu fyrir þolendavænna samfélagi. Ástæðan fyrir því að ég læt slag standa núna er að í dag, laugardaginn 26. júlí 2025, er Druslugangan haldin í 13. skipti. Í ár er markmiðið að fara aftur í kjarna baráttunnar gegn ofbeldi ásamt því að heiðra Ólöfu Töru sérstaklega, eina af mínum helstu fyrirmyndum þegar kemur að baráttu gegn kynferðisofbeldi. Það var mikið áfall að missa hana í byrjun árs og því ekki vanþörf á að fleira fólk finni hugrekkið til að stíga fram og þori að láta í sér heyra eins og hún gerði. Þetta ár er einnig sérstakt að því leyti að 2025 er sérstakt Kvennaár, tileinkað jafnréttisbaráttu kvenna þar sem nú eru 50 ár frá því konur á Íslandi lögðu niður störf þann 24. október 1975 og vöktu heimsathygli fyrir. Síðan þá og síðan ég varð fyrir kynferðisofbeldi fyrir 25 árum hefur margt breyst til hins betra en við erum samt ennþá að berjast við það að þolendum sé ekki trúað og það hefur hræðileg áhrif á þá til lengri tíma. Ég geng því þetta árið fyrir alla þolendur, allar druslur og skil þig kæri lesandi eftir með þær skýru upplýsingar að það sem þú segir og hvernig þú talar um þolendur skiptir máli. Þín viðbrögð hafa áhrif. Höfundur er þolandi, drusla og eilífðar uppreisnarseggur sem neitar að þegja Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kynferðisofbeldi Druslugangan Mest lesið Hvert var samkomulagið? Geir Finnsson Skoðun Forgangsröðunarskuld Brynjar Karl Sigurðsson Skoðun Bessastaðaboðskortin Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Auglýst eftir heimili á Facebook Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Skoðun Hættið að rukka vangreiðslugjald! Breki Karlsson,Runólfur Ólafsson Skoðun Hvað önnur lönd gera í húsnæðiskreppu – og hvað Ísland gerir ekki Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Er atvinnulífið að misnota heilbrigðiskerfið? Gunnar Ármannsson Skoðun Hækkum endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson Skoðun Félagsleg hjálp sem sviptir fátækasta fólkið sjálfsbjörg Vilhelm Jónsson Skoðun Eyðilegging Vélfags Sigurður G. Guðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar almenningsálit er lesið sem umboð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hættið að rukka vangreiðslugjald! Breki Karlsson,Runólfur Ólafsson skrifar Skoðun Heimsmynd byggð á öðrum fætinum Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hækkum endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Forgangsröðunarskuld Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerist þegar gervigreind mætir raunveruleikanum? Björn Thor Stefánsson,Kristján Sölvi Örnólfsson,Oliver Sanchez,Viktor Már Guðmundsson skrifar Skoðun Erum við í djúpum skít? Jón Pétur Wilke Gunnarsson skrifar Skoðun Auglýst eftir heimili á Facebook Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Félagsleg hjálp sem sviptir fátækasta fólkið sjálfsbjörg Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Er atvinnulífið að misnota heilbrigðiskerfið? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Traust verður að endurspeglast í framkvæmd Sandra B. Franks skrifar Skoðun Það er leikur að læra fyrir suma Aðalheiður M. Steindórsdóttir skrifar Skoðun Hvað önnur lönd gera í húsnæðiskreppu – og hvað Ísland gerir ekki Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ég vil breytingar Kristín Soffía Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvert var samkomulagið? Geir Finnsson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Íslenska velsældarhagkerfið: Stefnumörkun, áskoranir og tækifæri Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Soffia S. Sigurgeirsdóttir,Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Eyðilegging Vélfags Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Menntastefna á finnskum krossgötum Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill evrópskt sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Fyrirsjáanleiki í frístundastarfi Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Bessastaðaboðskortin Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Niðurrif er fljótlegra en uppbygging Gunnþóra Halldórsdóttir skrifar Skoðun Þegar fagleg auðmýkt víkur fyrir ofurhetjublæti Lára S. Benjnouh skrifar Skoðun Hugleiðing um hernað Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Börnin eiga að fá aðstoð strax og sínu umhverfi, ekki seinna og ekki annars staðar Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Golfvöllur er heilsuauðlind Steinn Baugur Gunnarsson skrifar Skoðun Farsæld barna kemur ekki af sjálfu sér Birgir Örn Guðjónsson skrifar Skoðun Íþróttasukk Grímur Atlason skrifar Skoðun Skipulagt svelti í framhaldsskólum Guðjón Hreinn Hauksson skrifar Sjá meira
Hækkum endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson Skoðun
Skoðun Hækkum endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar gervigreind mætir raunveruleikanum? Björn Thor Stefánsson,Kristján Sölvi Örnólfsson,Oliver Sanchez,Viktor Már Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað önnur lönd gera í húsnæðiskreppu – og hvað Ísland gerir ekki Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Íslenska velsældarhagkerfið: Stefnumörkun, áskoranir og tækifæri Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Soffia S. Sigurgeirsdóttir,Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar
Skoðun Börnin eiga að fá aðstoð strax og sínu umhverfi, ekki seinna og ekki annars staðar Valný Óttarsdóttir skrifar
Hækkum endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson Skoðun