„Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. maí 2025 14:03 Rikki fékk Sindra Sindrason í morgunkaffi. Ríkharð Óskar Guðnason eða Rikki G og eiginkona hans Valdís hafa staðið í ströngu í mörg ár við það að reyna eignast annað barn.
Sindri Sindrason leit við í morgunkaffi hjá Rikka í Íslandi í dag á dögunum en Rikki varð á dögunum fertugur. Í dag eiga þau hjónin saman ellefu ára dóttir, en annað barn á leiðinni. „Við vorum í ákveðnu ferli með dóttur okkar á sínum tíma en það gekk fljótlega hjá okkur, og þá náttúrulega. Þetta ferli er búið að taka fimm ár með öllu. Við vorum hjá Livio í Glæsibæ og vorum búin að fara í nokkur skipti í frjóvganir. Við urðum ólétt einu sinni en misstum og þá fór maður að hugsa hvort maður ætti að fara kalla þetta gott,“ segir Rikki og heldur áfram. „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið. Maður reiknaði ekki alveg með því og maður hugsar ekki, þetta er fóstur og ekki orðið að barni, þegar maður lendir í þessu sjálfur. Þá hugsar maður að þetta er barnið mitt og fer að velta fyrir sér hvort þetta hefði orðið strákur eða stelpa. Við vorum allt of snemma í því að plana og létum of marga í kringum okkur vita að við ættum von á barni. Svo kemur skellurinn og þá þarf maður að fara segja fólki frá því að við misstum. En þetta tókst síðast og núna erum við komin yfir þennan hættuhjalla, þessar tólf vikur,“ segir Rikki. Þau hjónin eiga von á barni í nóvember en hér að neðan má sjá viðtalið við hann í heild sinni þar sem Rikki fer einnig yfir ferilinn hans í fjölmiðlum.
Ísland í dag Frjósemi Ástin og lífið Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira