Skólarnir í eina sæng Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. apríl 2025 16:58 Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, Logi Einarsson, ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla, og Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, handsala samninginn. Gunnar Sverrisson Rektorar Háskóla Íslands (HÍ), Háskólans á Hólum (HH) og háskólaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um stofnun háskólasamstæðu með þátttöku þessara tveggja háskóla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólunum.
Þar segir að samstæðan taki formlega til starfa þann 1. janúar á næsta ári en henni sé ætlað að bæta samkeppnishæfni háskólanna tveggja ásamt því að auka gæði náms, rannsókna, stoðþjónustu og auka tengsl við atvinnulíf og samfélög um land allt. Háskólasamstæðan muni starfa undir nafni Háskóla Íslands. Logi Einarsson, ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla, Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor HH, undirrituðu samkomulagið í Sögu, húsi Háskóla Íslands, fyrr í dag. Samkvæmt samkomulaginu er háskólasamstæðunni ætlað að styrkja HÍ sem leiðandi háskóla í íslensku samfélagi og HH, sem verður Háskóli Íslands á Hólum, sem sérhæfðan háskóla á landsbyggðinni. „Við erum fámenn þjóð en með aukinni samheldni og skýrri framtíðarsýn getum við skapað háskólaumhverfi sem stenst alþjóðleg viðmið þar sem fagleg breidd, þjónusta við samfélagið og rannsóknasamstarf eru í forgrunni,“ sagði Logi Einarsson, ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla. „Með þessari samstæðu skapast einstakt tækifæri til að efla háskólastarf á landsbyggðinni og það skiptir lykilmáli í því að tryggja jafnt aðgengi að háskólamenntun, efla staðbundið samfélag og styrkja nýsköpun víðs vegar um landið.“ Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, tók í svipaðan streng og ráðherra. „Þetta er stórt skref, ekki bara í því að styðja við báða háskóla sem hér eiga í hlut heldur í því brýna verkefni að styrkja allt háskólastarf á Íslandi. Þetta á ekki síst við um samþættingu hérlendra háskóla í alþjóðlegri samkeppni. Þetta fyrsta skref mun stuðla að aukinni fjölbreytni í námsframboði, þróun námsgreina og rannsókna með áherslu á þarfir atvinnulífs og samfélags,“ sagði Jón Atli Benediktsson. Með samkomulaginu er einnig ætlunin að samþætta prófgráður, auka þjónustu við nemendur og kennara, bæta aðferðir við kennslu og auka rannsóknasamstarf. „Háskólasamstæður þekkjast víða erlendis og voru einmitt stofnaðar til að efla háskólastarfsemi á landsvísu og ekki síst í hinum dreifðum byggðum. Stofnun háskólasamstæðu Háskóla Íslands er því eitt mikilvægasta byggðaþróunarverkefni Íslands í dag,“ sagði Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum. Hún sagði að háskólasamstæðan muni auka tækifæri til nýsköpunar í nánu samstarfi við sterkar atvinnugreinar á Norðurlandi vestra og landsbyggðinni allri. Áhersla á að stækka samstæðuna Háskólarnir tveir eru ásamt stjórnvöldum sammála um að stofnun háskólasamstæðu sé vænleg leið til að samþætta og efla íslenskt háskólakerfi. Með samkomulaginu verði lögð áhersla á að samstæðan sé eftirsóknarverð fyrir fleiri háskóla og rannsóknastofnanir. Ætlunin er að fá fleiri inn í samstæðuna til að styrkja hana og um leið íslenskt háskólakerfi. Kapp verði lagt á að hver aðili að samstæðunni haldi sérstöðu sinni, ásamt áherslu á uppbyggingu nauðsynlegra innviða til að styrkja samstæðuna í vaxandi alþjóðlegri samkeppni um fjármagn, nemendur og starfsfólk. Stjórnskipulag samstæðunnar tekur mið af skipulagi HÍ. Yfir henni verður einn háskólarektor og eitt háskólaráð en samstarfsráð verður skipað til að fara með mikilvægar ákvarðanir sem lúta að samstarfi aðildarháskóla. Núverandi rektorsembætti Háskólans á Hólum breytist í forseta Háskóla Íslands á Hólum. Miðað er við að samstæðan starfi með sameiginlega kennitölu og fjárlaganúmer frá 1. janúar 2026 og að frá þeim tíma heyri allir starfsmenn og nemendur aðildarháskólanna undir samstæðuna. Háskólasamstæðan mun starfa um land allt Nauðsynlegt er að undirbúa lagabreytingarnar fyrir stofnun samstæðunnar en hún mun reka sameiginlega stjórnsýslu og stoðþjónustu og starfa víða um land en hafa meginstarfsstöðvar í Reykjavík og í Skagafirði. Í tengslum við ráðningar í störf, t.d. í stjórnsýslu og stoðþjónustu samstæðunnar, verður leitast við að fjölga störfum sem staðsett eru í Skagafirði. Gert er ráð fyrir uppbyggingu aðstöðu á Hólum, m.a. húsnæði fyrir kennslu og rannsóknir í fiskeldis- og fiskalíffræði og hestafræði. Auk þess verður uppbygging á innviðum og aðstöðu til rannsókna á Sauðárkróki. Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands mun flytja höfuðstöðvar sínar í Skagafjörð þar sem leitt verður starf setra um allt land með tugi vísindamanna og fjármagn til rannsókna í sterkum tengslum við samfélag og atvinnulíf.
Háskólar Skóla- og menntamál Skagafjörður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Innlent „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Innlent Nauðguninni flett upp í LÖKE hjá þremur embættum Innlent Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Innlent Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Innlent Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Innlent Fær ekkert greitt því að hann er Íslendingur Innlent Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Innlent Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent Fleiri fréttir „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum Menningarverðlaun Árborgar til hjóna á Eyrarbakka Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Óskiljanleg lánaviðmið og Grammy-tilnefning stórstjörnunnar Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Veittist fyrst að dyravörðum og svo að lögreglumönnum Fluttur á slysadeild eftir hópárás Grunaður um að aka undir áhrifum með börnin aftur í Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Fjöldi gesta á vellinum myndi takmarkast við 5000 Mikil hætta skapist sé ekið á nýsteypta brúna Nauðguninni flett upp í LÖKE hjá þremur embættum Þyrstir fagna komu jólabjórsins til byggða Fær ekkert greitt því að hann er Íslendingur Óbreytt klukka stöðutaka gegn vísindum og lýðheilsu Bjargey meðferðarheimili: „Þetta var eins og lúxusneyslurými“ „Lúxus-neyslurými“, klukkan umdeilda og tímamót á börum Gallinn varði í átta vikur og tveir komust úr landi Saksóknari handtekinn við skemmtistað í sumar Tafir vegna óhapps við Sprengisand Meti kostnað og ábyrgð annarra á að greiða varnargarða Ný heilsugæslustöð tekin í notkun á Flúðum Lítið hægt að gera við kínverska vagna Strætó annað en að stöðva þá Skulda annarri konu fleiri milljónir vegna launamismunar „Þetta er flókið verkefni og ekki hægt að ráða við allar aðstæður“ „Set alvarlegt spurningamerki við að draga út einstaka þjóðerni fólks“ Sjá meira