Fékk krampa og drapst vegna fuglaflensu Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Magnús Jochum Pálsson skrifa 8. janúar 2025 21:12 Ragnheiður og Karen þurfa öryggisins vegna að fara að fara í sýnatöku hjá Heilsugæslunni þar sem þær voru nálægt veikum ketti. Vísir/Einar Kettlingur sem drapst hér á landi er fyrsta heimilisdýrið á heimsvísu sem greinist með skætt afbrigði fuglaflensu. Læðan sem kettlingurinn var undan og annar kettlingur úr sama goti drápust líka. Fólki sem sá um veiku dýrin hefur verið gert að fara í sýnatöku.
Mast hefur vakið athygli á að skætt afbrigði fuglaflensu, svo kallað H5N5, hafi greinst í kettlingi hér á landi og er það í fyrsta skipti í heiminum sem það greinist í heimilisdýri, samkvæmt Alþjóðadýraheilbrigðisstofnun. Læðan sem kettlingurinn var undan og annar kettlingur úr sama goti drápust líka eftir stutt veikindi en voru ekki krufin. Talið er að kettirnir hafi sýkst af veikum fugli. Alls hafa ellefu villtir fuglar greinst með sama afbrigði á landinu síðustu mánuði þar af ríflega helmingur á höfuðborgarsvæðinu. MAST tekur fram að smithætta fyrir fólk af þessu afbrigði sé lítil þar sem engin tilfelli um smit úr spendýrum eða fuglum yfir í fólk hafi verið tilkynnt. Hér fyrir neðan má sjá viðtal fréttastofu við kattareigendur og í kjölfar þess viðtal við yfirdýralækni Mast. Varð slöpp degi eftir komuna á heimilið Kettlingurinn Dimma fæddist á Ísafirði og kom til nýs eiganda síns í Reykjavík um miðjan desember. „Hún kom hérna til okkar hoppandi og skoppandi, algjör prinsessa og féll algjörlega inn í fjölskylduna,“ segir Karen Dagmar Guðmundsdóttir, eigandi Dimmu. Dimma fékk mikla krampa áður en hún drapst. Um sólahring síðar byrjaði Dimma að vera slöpp og líða illa. „Ég fer með hana daginn eftir yfir til dóttur minnar því hún á læðu,“ segir Karen. Kettlingurinn hélt áfram að veikjast og þær fóru með hana til dýralæknis sem gaf henni sýklalyf. „Ég hjúkraði henni og reyndi allt sem ég gat en um ellefuleytið 22. [desember] þá byrjar hún að krampa og skjálfa, sem jókst og jókst. Það voru bara nokkrar mínútur á milli þar til þetta voru orðnir sex mínútna krampar og hún lést svo,“ segir hún. Mamman og systirin drápust líka Karen frétti svo af því að því að læðan sem gaut Dimmu á Ísafirði hefði líka drepist og annar kettlingur úr gotinu. „Systir hennar dó daginn áður, 21. desember, og mamma hennar 20. úr sömu einkennum. Okkur fannst það mjög óeðlilegt,“ segir Karen. Hún fór því með hræið af Dimmu og óskaði eftir krufningu á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði, Keldum. Þar kom svo í ljós þann 6. janúar að kettlingurinn hafði drepist úr fuglaflensu. Ragnheiður og Karen með öðrum af tveimur köttum Ragnheiðar sem eru báðir hressir þrátt fyrir að hafa umgengist kettlinginn veika. „Ég er rosalega ánægð að ég hélt því til streitu að fara með hana í krufningu,“ segir hún. Karen og Ragnheiður þurfa öryggisins vegna að fara að fara í sýnatöku hjá Heilsugæslunni þar sem þær voru nálægt veikum ketti. Börn sem komu nálægt kisunum eru í smitgát. „Ég fékk símtal um að ég ætti að koma í sýnatöku í fyrramálið því ég sé útsett þar sem hún dó í fanginu á mér. Þeir eru búnir að taka sýni fyrir vestan af hjónunum sem sáu um læðuna og systurina. Svo bíðum við eftir niðurstöðum úr því,“ segir Karen. Sjokk og stress Ragnheiður sem á tvo ketti sem hittu Dimmu segir þá heilbrigða og hún haldi þeim inni í samráði við MAST þar til annað sé leyft en ástandið taki þó óneitanlega á. „Þetta er búið að vera sjokk og stress en kisurnar mínar eru sem betur fer heilbrigðar,“ segir Ragnheiður. Þær vilja koma skilaboðum til gæludýraeigenda „Þú átt ekki að hafa þau eftirlitslaus og leyfa þeim að þefa af öllu og smakka allt,“ segir Karen.
Kettir Dýraheilbrigði Dýr Tengdar fréttir „Það er engin hætta á því að kaupa kalkún“ „Sem betur fer hefur þetta bara komið upp í einu húsi og alifuglabændur viðhafa almennt mjög miklar smitvarnir og hafa verið á tánum vegna þessara greininga í villtum fugli. Við erum að vonast til þess að smitvarnirnar haldi svo þetta komi ekki upp í fleiri búum. Það getur auðvitað gerst. Ef þetta yrði mjög útbreitt þá gæti komið upp sú staða að það myndi hafa áhrif á markaðinn.“ 7. desember 2024 19:10 Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Skæð fuglaflensa af gerðinni H5N5 var staðfest í alifuglum í Ölfusi í dag. Undirbúningur fyrir aflífun fuglanna er hafin og á að beita sóttvarnarráðstöfunum til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. 3. desember 2024 20:12 Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira
„Það er engin hætta á því að kaupa kalkún“ „Sem betur fer hefur þetta bara komið upp í einu húsi og alifuglabændur viðhafa almennt mjög miklar smitvarnir og hafa verið á tánum vegna þessara greininga í villtum fugli. Við erum að vonast til þess að smitvarnirnar haldi svo þetta komi ekki upp í fleiri búum. Það getur auðvitað gerst. Ef þetta yrði mjög útbreitt þá gæti komið upp sú staða að það myndi hafa áhrif á markaðinn.“ 7. desember 2024 19:10
Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Skæð fuglaflensa af gerðinni H5N5 var staðfest í alifuglum í Ölfusi í dag. Undirbúningur fyrir aflífun fuglanna er hafin og á að beita sóttvarnarráðstöfunum til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. 3. desember 2024 20:12